Sláðu inn stærð kæli- eða frystiklefans og fáðu tillögu að réttu Technoblock kerfi. Frá KGG — Kristjáni G. Gíslasyni ehf, heildsölu í kælibúnaði síðan 1945.
Splitt-kerfi (bi-block) skiptist í tvennt: þéttieining utan klefans og eimir í lofti klefans, tengt saman með forfylltum rörum. Þetta er algengasta lausnin þegar ekki má gata klefann fyrir heila monoblokk eða þegar hávaði á að vera utan við rýmið.
| Gerð | Hentar þegar… |
|---|---|
| Splitt (bi-block) | Þéttieining á vegg eða gólfi utan klefans, eimir í lofti inni. Hljóðlátt inni, sveigjanleg staðsetning — algengasta lausnin. |
| Monoblokk | Ein heil eining sem hengd er á vegg, í loft eða yfir hurðargat. Fljótleg uppsetning, engin rörlögn á staðnum. |
| Þéttieining | Þegar eimir og stýring eru valin sér — t.d. í sérsmíðuð kerfi eða þegar skipta á út eldri þéttieiningu. |
| Fjölpressukerfi | Stærri frystihús og verslanir með marga klefa eða kæla á sama kerfi. |
KGG — Kristján G. Gíslason ehf hefur þjónustað íslenskan kæliiðnað síðan 1945. Sendu okkur málin á klefanum, hitastigið sem á að halda og hvað á að geyma, og við förum yfir valið með þér.
kgg@kgg.is Sími 55-20000