Technoblock kælikerfi

Technoblock frá Ítalíu smíðar fullbúin kælikerfi fyrir kæli- og frystiklefa.
Kerfin koma fullhlaðin og prófuð frá verksmiðju — engin lóðun á staðnum, engin
kælimiðilsáfylling, engin samsetning úr lausum hlutum.

Splitt-kerfin henta bæði fyrir kæli (+0 °C) og frysti (−22 °C).
Auk þeirra bjóðum við monoblokka, þéttieiningar, bi-block línur og fjölpressukerfi.

Hvaða kerfi á ég að velja?
Þrjár spurningar ráða valinu:

Kæling eða frysting? Kæliklefi við +0 °C eða frystiklefi við −22 °C.
Hvað er klefinn stór? Rúmmetrarnir ráða stærð kerfisins — margfaldaðu
lengd × breidd × hæð.
Má þjappan vera inni í rýminu? Ef ekki — og það er oftast svarið í
eldhúsi eða verslun — velurðu splitt-kerfi þar sem þjappan situr utan klefans.

Splitt-kerfi
Þjappan og þéttirinn utan klefans, aðeins eimarinn inni. Hávaðinn og varminn fara ekki
inn í vinnurýmið.

GerðNotkunKlefastærðÞéttir
STX-050
Kæling +0 °C12 m³Loft eða vatn
STX-075
Kæling +0 °C18 m³Loft eða vatn
STX-150
Kæling +0 °C29 m³Loft
STX-122
Kæling +0 °C30 m³Loft eða vatn
STZ-170
Frysting −22 °C11–13 m³Loft eða vatn
STZ-202
Frysting −22 °C17 m³Loft
STZ-203
Frysting −22 °C27 m³Loft eða vatn

Loftkælt blæs varmanum út í loftið — einfaldara, engin vatnslögn.
Vatnskælt skilar honum í vatnslögn og hentar þegar einingin situr í lokuðu rými
sem má ekki hitna. Flestar gerðir eru fáanlegar í báðum útfærslum.

Monoblokkar
Allt kerfið í einum kassa sem er settur í gegnum vegg eða loft klefans. Fljótlegast í
uppsetningu, en þjappan situr þá í veggnum og skilar hávaða og varma inn í rýmið.

GerðUppsetningKæliaflKlefastærðÁ best við
T · TS · TSD
Veggfest, gegnum gat350 – 14.000 W2 – 430 m³
Sjálfgefið val fyrir venjulegan klefa innandyra
P
Loftfest300 – 5.500 W2 – 97 m³
Þegar veggpláss er uppurið
A · AS · ASD
Yfirhengd á vegg350 – 6.900 W2 – 143 m³
Þegar ekki má skera stórt gat í vegginn
TI
Veggfest, stór1.000 – 53.000 W10 – 1.600 m³
Iðnaðarklefar, hraðfrysting niður í −45 °C
TE
Veggfest, útigerð1.600 – 5.000 W—
Klefar sem standa úti og fá ekkert skjól
AT
Monoblokk480 – 4.771 W4 – 87 m³
Lágt GWP — R-455A
ATS
Innanhúss680 – 2.028 W2,9 – 20 m³
Própan (R-290), hámark 150 g á rás

Þéttieiningar
Þjappan og þéttirinn á sérgrind utan klefans, eimarinn valinn sér. Þetta er leiðin þegar
kerfið er orðið of stórt fyrir splitt-einingu.

UH — 470 – 4.600 W, minni gerðir
UC — 1.600 – 27.000 W, lóðningarlausar tengingar
US / USQ — 1.000 – 9.400 W, hljóðeinangrað þjöpphólf
UI — 1.500 – 113.000 W, iðnaður og hraðfrysting

Mörg kerfi á einni grind
Þegar mörg kæli- og frystirými eru á sama stað borgar sig oft að setja þjöppurnar saman á
eina grind. Afkastastýringin verður þrepaskipt, öll þjónusta er á einum stað og bili ein
þjappa gengur kerfið áfram á hinum:

CMMR-H — 3–4 lokaðar þjöppur,
verslun og veitingar
CMMR-S — 2–4 hálflokaðar
þjöppur, viðgerðarhæfar, niður í −30 °C

Hafðu samband
Sendu okkur stærð klefans, hitastigið sem þú þarft og hvort þú getur losað varmann út eða
í vatn — við förum yfir valið og gerum tilboð:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.
❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Bi-block línurnar — allt úrvalið
Splitt-kerfin STX og STZ eru hluti af stærri fjölskyldu. Þessar línur eru einnig fáanlegar:

LínaUppsetningAfköstKlefastærð
PSLoftfest inni í klefa300–4.800 W2–85 m³
SÞéttieining á vegg425–5.184 W2,8–77 m³
SEÞéttieining á vegg400–6.700 W3–112 m³
SHÞéttieining á gólfi590–4.562 W1,4–96 m³
BHGólf, með þenslulokastýringu600–4.800 W1,5–100 m³
OVGólf, niður í −40 °C370–23.083 W2–1.245 m³
BIIðnaður, hálflokaðar þjöppur2–111 kW20–9.500 m³

Hljóðeinangruð kerfi

GS — hljóðeinangrað þjöppuhólf, 800–9.500 W, klefar 5–250 m³.
US / USQ — hljóðeinangruð þéttieining.
GSDF — fyrir stórmarkaði og matvörudreifingu, líka svalasvið +14/+8 °C.

Eimarar (stakir)
Þegar byggja á kerfi úr einingum eða skipta út eimara í eldra kerfi:
EVB,
EVC og
EVS — koparrör með álblöðum, álhús og
stálfestingar með katafóresuhúð, fyrir bæði kælingu og frystingu.

Showing 1–12 of 36 resultsSorted by popularity

Scroll to Top