Hurðir á lömum fyrir kæli- og frystiklefa frá Infraca á Spáni, í þremur gerðum: LITE, Commercial og Industrial. LITE er létt hurð fyrir minni klefa í verslunum, veitingahúsum og hótelum. Commercial er almenna klefahurðin og fæst með fjölbreyttum klæðningum og aukabúnaði. Industrial er sterkasta gerðin, fer niður í -40 °C og er ætluð kjöt-, fisk-, grænmetis- og mjólkuriðnaði og vörumiðstöðvum, meðal annars þar sem vinnuvélar fara um eða loka þarf af kælivélarými.
Samanburður
| LITE | Commercial | Industrial | |
|---|---|---|---|
| Hitastig | +0 °C / -20 °C | +0 °C / -20 °C | +0 °C / -20 °C / -40 °C |
| Þykkt hurðarblaðs | 60 mm / 80 mm | 60 mm / 80 mm | 100 mm / 120 mm / 140 mm |
| Hitastrengur | 40 W/m (-20 °C) | 40 W/m (-20 °C) | 40 W/m (-20 °C), 50 W/m (-40 °C) |
| Hámarks ljósop | 1,2 × 2,2 m | 1,2 × 2,2 m | 1,8 × 4 m, mest 5 m² |
| Lokun | eins punkts, lykillæsing 5521 fylgir | eins punkts, 5520 | þriggja punkta, I1006 |
| Klæðning | lakkað stál RAL 9010 | lakkað stál, ryðfrítt AISI 304 2B, PVC-stál, GRP o.fl. | lakkað stál, ryðfrítt AISI 304 2B, PVC-stál (plastisol), GRP o.fl. |
| Karmur | anodíseraður, forstilltur fyrir framfestingu á einingu | anodíseraður eða hvítlakkaður, með undirkarmi | anodíseraður eða hvítlakkaður, með undirkarmi |
Hæð og breidd umfram þetta eftir fyrirspurn.
Sameiginlegt
- Hurðirnar koma forsamsettar og fljótlegt er að setja þær upp
- Karmur úr L-laga álprófílum með kuldabroti, 20 µm anodíseraður. Tvöfalt kuldabrot í frystihurðum
- Hurðarblað sprautað hvert fyrir sig, leggst lítillega yfir karminn og er með anodíseruðum álkantlistum
- Tvöfaldur samþrykktur EPDM-þéttilisti
- Lokunarbúnaður úr gráu samsettu efni og áli, opnanlegur að innan. Lóðréttar lamir sem má hækka
- PE-styrking innan í hurðarblaðinu undir handföngum
- Hitastrengur í karmi á frystihurðum
- Hvítt er staðallitur, aðrir litir fást
Commercial og Industrial
Karmurinn á Commercial og Industrial er sjálfberandi með tvöföldu kuldabroti og einkaleyfi Infraca. Hann er alltaf gerður fyrir lyftaraumferð nema pantaður sé lágur karmur. Undirkarmurinn er úr hvítlökkuðu áli og passar við allar þykktir klefaeininga. Ryðfríar hurðir koma með anodíseruðum karmi. Industrial er með sterkari lamir og þolir mikla notkun.
LITE
LITE fæst með karmi á þremur hliðum, sléttum karmi með þröskuldi eða upphækkuðum þröskuldi. Lykillæsing fylgir sem staðalbúnaður.
Málsetning
| LITE | Commercial | Industrial | |
|---|---|---|---|
| Uppsetningarop | breidd + 50 mm · hæð + 20 mm | breidd + 100 mm · hæð + 50 mm | breidd + 100 mm · hæð + 50 mm |
| Breidd karms | ljósop + 240 mm | ljósop + 280 mm | |
| Hæð karms (heildarhæð) | ljósop + 100 mm | ljósop + 120 mm | ljósop + 140 mm |
| Snúningsrými | ljósop + 225 mm (kælir), + 270 mm (frystir) | ljósop + 285 mm | |
| Gróp í gólf fyrir felldan karm | 140 mm breið, 50 mm djúp, lengd = ljósop + 300 mm | ||
Aukabúnaður
- Upphækkaður lyftaraþröskuldur (allar gerðir)
- Lykillæsing (Commercial 5521, Industrial G-24)
- Gluggi 300 × 300 mm á kælihurðir
- Úrtak fyrir lofthengda braut
- Veggkarmur
- Hlífar úr ryðfríu stáli eða tígulplötu
- Gormlokun
- Rafsegullæsing
- HTCP-stýring á hitastreng í frystihurðum
- Commercial: panic-slá, karmur klæddur ryðfríu stáli, innfelld hurð með lágum karmi og stangarlæsingu, þjónustulúgur um 500 × 500 mm með krómuðum búnaði
- Industrial: tvöföld hurð (tvö blöð), og sérstök útfærsla fyrir stórmarkaði með sérstökum karmi, handvirkri stangarlæsingu og hljóðlátum, sterkum lömum
Kavidoors-hurðir á lömum eru á síðunum kæliklefahurðir, frystiklefahurðir og iðnaðarhurð á lömum. Eldvarnarhurðir á lömum fyrir kæli og frysti frá Infraca eru á síðunni eldvarnarhurðir fyrir kæli og frysti.
Gagnablað LITE (PDF) · Gagnablað Commercial (PDF) · Gagnablað Industrial (PDF)
Hurðirnar eru smíðaðar eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.