KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › Iðnaðarhurð á lömum fyrir kæli, frysti og frystigöng

Iðnaðarhurð á lömum fyrir kæli, frysti og frystigöng

Iðnaðarhurð á lömum fyrir kæli, frysti og frystigöng

Iðnaðarhurð á lömum frá Kavidoors, fyrir kæliklefa (0 °C), frystiklefa (−20 °C) og frystigöng (−40 °C). Hurðarblaðið er þykkara en á Tecnik-hurðunum og fæst ýmist einfalt eða tvöfalt. Framleiðandinn gefur hana upp fyrir kjöt-, mjólkur-, grænmetis- og fiskvinnslu og vörudreifingu, í stór rými, þar sem tæki og lyftarar fara um og í vélarými kælikerfa.

Tæknilegar upplýsingar

  • Hitastig og þykkt hurðarblaðs: 80 mm við 0 °C, 100 mm við −20 °C, 120 mm við −40 °C
  • Einföld hurð, hámarks ljósop: 1,2 m breidd × 2,2 m hæð, mest 5 m² alls
  • Tvöföld hurð, hámarks ljósop: allt að 3 m breidd og 2,2 m hæð, mest 5 m² alls
  • Karmur: sjálfberandi álprófílar, 20 µm anodíseraðir í silfurlit, eða hvítlakkaðir
  • Kuldabrot: teleskópískur karmur og undirkarmur með tvöföldu kuldabroti, festist jafnt á einingavegg og múrvegg. Í prófílnum er rauf fyrir hitastreng þegar hurðin er notuð í frosti
  • Hurðarblað: leggst yfir karminn og er kantað með anodíseruðum állistum
  • Lamir: STUV Varioflex úr gráu sinki, opnast allt að 180° og halda hurðinni í 120°, stillanlegar í þrjár áttir
  • Þétting: sveigjanlegur PVC-þéttilisti allan hringinn, festur í rauf á hurðarblaðinu og auðvelt að skipta um
  • Handfang: STUV-handfang sem opnast með ýtingu eða snúningi, lykillæsing sem valkostur. Að innan er panic-handfang úr ryðfríu stáli svo enginn lokist inni
  • Lokunarhæð: 1056 mm (einföld hurð)

Gerðir

  • KHCV: 80 mm hurðarblað
  • KHFV: 100 mm hurðarblað, styrktur karmur og gólffest stykki
  • KHTV: 120 mm hurðarblað, styrktur karmur, styrkt hurðarblað og gólffest stykki

Tvöföld hurð

Þegar ljósopið er of breitt fyrir eitt hurðarblað er sett tvöföld hurð, með virku og óvirku blaði. Óvirka blaðið er læst með slagbolta upp og niður og virka blaðið lokast að því. Læsingin er STUV EURO 5000 fjölpunktalæsing úr PA6-plasti sem þolir −40 °C til 100 °C.

Hurðarblaðið er með anodíseraðri álgrind, 0,6 mm hvítlökkuðu stáli og PIR-kjarna (40–45 kg/m³). Karmurinn stillist um ±40 mm og passar í veggi sem eru 60–110, 120–170 eða 180–230 mm þykkir. Þéttilistinn er tvöfaldur allan hringinn.

Klæðning og litir

PET 55 µ, Granite HDX 55 µ, lakkað stál 25 µ, ryðfrítt stál 304/316, fenól og trefjastyrkt plast (FRP). Flestir RAL-litir í boði.

Málsetning, einföld hurð

  • Karmur: breidd = ljósop + 264 mm · hæð = ljósop + 132 mm
  • Undirkarmur: breidd = ljósop + 190 mm · hæð = ljósop + 132 mm
  • Uppsetningarop: breidd = ljósop + 60 mm · hæð = ljósop + 30 mm

Á tvöföldu hurðinni er karmurinn ljósop + 264 mm á breidd og ljósop + 132 mm á hæð.

Aukabúnaður

  • Gluggi 300 × 300 mm (ISO)
  • Hlífar á hurðarblað úr ryðfríu stáli, tígulplötu, áli eða PE
  • Fjölpunktalæsing
  • Lyftaraþröskuldur eða þrepaþröskuldur
  • Kapellukerfi fyrir lofthengda braut
  • Gormur sem lokar hurðinni
  • Hvítlakkaður karmur

Fyrir minni hurðir í kæli og frysti eru Tecnik-hurðirnar: kæliklefahurð 60 mm og frystiklefahurð 80 mm.

Gagnablað, einföld hurð (PDF)
Gagnablað, tvöföld hurð (PDF)
Gátlisti fyrir mál og upplýsingar (PDF)

Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.