Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Vatn › Glýkól fyrir hitakerfi – tilbúið að −20 °C – 20 L
Glýkól fyrir hitakerfi – tilbúið að −20 °C – 20 L
Thermox DTX™ glýkól fyrir varmadælur og lokuð hitakerfi. Tilbúið blandað að −20 °C, ending 20 ár, óeitrað. Varist bílafrostlög á hitakerfi.
Thermox DTX™ er glýkól fyrir lokuð hitakerfi: varmadælur (jarðvarma og loft-í-vatn), snjóbræðslu og önnur lokuð hita- og kælikerfi. Það kemur tilbúið blandað að −20 °C. Engin blöndun, því er hellt beint á kerfið.
Tilbúið að −20 °C · Ending 20 ár · Óeitrað
Varist bílafrostlög og rúðuvökva á hitakerfi. Mörg dæmi eru um að óæskileg efni séu notuð á hitakerfi. Frostlögur fyrir bíla er gerður fyrir bílvélar, ekki lokuð hitakerfi, og venjulegt etýlenglýkól er eitrað mönnum og dýrum ef það lekur. Rangur vökvi getur valdið tæringu í varmaskiptum, útfellingum og minni afköstum. Slíkur vökvi endist líka illa: við þekkjum mörg dæmi um að varmaflutningurinn minnki og kerfi frjósi eftir 3–5 ár.
Af hverju Thermox DTX?
Ending: 20 ár á kerfinu.
Tilbúið: Blandað að −20 °C frá framleiðanda, engin blöndun á staðnum.
Betri nýtni: Framleiðandi gefur upp yfir 10% betri nýtni en própýlenglýkól (MPG), vegna lægri seigju og betri varmaleiðni. Léttara í dælingu í kulda.
Óeitrað: Flokkað Non-Toxic og Food-Safe (LD50 > 20.000 mg/kg).
Tæringarvörn: Tæringar-, steinmyndunar- og lífvörn samkvæmt ASTM D1384.
Tæknilegar upplýsingar
Grunnefni
Etýlenglýkól með DeTox™ íblöndun (óeitrað)
Frostvörn
−20 °C, tilbúið blandað
Ending
20 ár
pH gildi
7,5 – 9,5
Suðumark
> 100 °C
Staðlar
ASTM D1384 / BS6580
Efnissamhæfni
Kopar, stál, ryðfrítt stál, ál og algengar gúmmíþéttingar
Umbúðir
20 L
Algengar spurningar um glýkól á hitakerfi
Má nota bílafrostlög eða ódýrari glýkólblöndu?
Nei. Bílafrostlögur er gerður fyrir bílvélar, ekki lokuð hitakerfi, og venjulegt etýlenglýkól er eitrað. Rangur vökvi getur valdið tæringu í varmaskiptum, útfellingum og skertum afköstum varmadælunnar.
Þarf að blanda?
Nei. Thermox DTX kemur tilbúið blandað að −20 °C og er hellt beint á kerfið.
Hvers vegna betra en hefðbundið própýlenglýkól (MPG)?
Própýlenglýkól er seigt í kulda, sem gerir dælingu erfiðari og dregur úr varmaflutningi. Thermox DTX er með lægri seigju og betri varmaleiðni, sem bætir nýtni varmadælunnar.
Er það óhætt?
Já. DeTox™ íblöndunin kemur í veg fyrir að líkaminn brjóti etýlenglýkólið niður í eitruð efni. Vökvinn er flokkaður óeitraður (Non-Toxic).
Hversu oft á að mæla?
Mælt er með að mæla frostvörn og pH árlega, svo tryggt sé að frostvörn og tæringarvörn séu í lagi.
Sláðu inn stærðir kerfisins. Reiknivélin áætlar vatnsmagn kerfisins og hve marga 20 L brúsa af Thermox DTX glýkóli þarf. Vökvinn er tilbúinn að −20 °C, svo magnið er einfaldlega rúmmál kerfisins. Engin blöndun.
Sendu okkur niðurstöðuna og við svörum með verði í – × 20 L brúsa af Thermox DTX.
Ekki blanda með vatni. Thermox DTX er tilbúið að −20 °C. Ef það er þynnt minnkar frostvörnin. Þetta er áætlun. Rétt magn fæst með því að mæla það sem fer á kerfið. Spurningar: [email protected] · 55-20000.
(function(){
var r=document.getElementById("kggr");if(!r)return;
function v(k){var e=r.querySelector("[data-k="+k+"]");var x=parseFloat(String(e.value).replace(",","."));return isFinite(x)&&x>0?x:0;}
function f(x){return x.toFixed(1).replace(".",",");}
function s(k,t){var e=r.querySelector("[data-u="+k+"]");if(e)e.textContent=t;}
var nid="",t0=Date.now(),fm=document.getElementById("kggr-tb");
if(fm){fm.addEventListener("submit",function(e){e.preventDefault();
var sv=document.getElementById("kggr-svar"),b=fm.querySelector("button");
if(!fm.nafn.value.trim()||!/.+@.+\..+/.test(fm.netfang.value)){sv.className="kggr-svar villa";sv.textContent="Vinsamlegast fylltu út nafn og netfang.";return;}
var d=new FormData(fm);d.append("action","kgg_glykol_verd");d.append("nidurstada",nid);d.append("t",String(Math.round((Date.now()-t0)/1000)));d.append("slod",location.href);
b.disabled=true;b.textContent="Sendi...";
fetch("/wp-admin/admin-ajax.php",{method:"POST",body:d}).then(function(x){return x.json();}).then(function(j){
if(j&&j.success){sv.className="kggr-svar ok";sv.textContent="Takk! Fyrirspurnin er komin til okkar og við svörum með verðtilboði fljótlega.";fm.reset();}
else{sv.className="kggr-svar villa";sv.textContent=(j&&j.data)||"Villa kom upp. Sendu okkur póst á [email protected].";}
}).catch(function(){sv.className="kggr-svar villa";sv.textContent="Villa kom upp. Sendu okkur póst á [email protected].";}).then(function(){b.disabled=false;b.textContent="Senda fyrirspurn um verð";});});}
function reikna(){
var tank=v("tank"),dula=v("dula"),stofn=v("stofnm")*v("stofnr"),golfm=v("flotur")*v("cc"),golf=golfm*v("golfr"),ofn=v("ofnar")*v("ofnl"),annad=v("annad");
var grunnur=tank+dula+stofn+golf+ofn+annad,alag=grunnur*v("alag")/100,alls=grunnur+alag;
s("tank",f(tank));s("dula",f(dula));s("stofn",f(stofn));s("golfm",String(Math.round(golfm)));s("golf",f(golf));s("ofn",f(ofn));s("annad",f(annad));s("alagp",String(v("alag")).replace(".",","));s("alag",f(alag));
var br=String(Math.max(alls>0?1:0,Math.ceil(alls/20)));s("alls",f(alls));s("brusar",br);s("brusar2",br);
var t=r.querySelector("table"),lin=[];if(t){t.querySelectorAll("tr").forEach(function(x){lin.push(x.cells[0].textContent+": "+x.cells[1].textContent);});}
var nl=String.fromCharCode(10);nid="Áætlað magn: "+f(alls)+" L = "+br+" x 20 L brúsar"+nl+lin.join(nl);
}
r.addEventListener("input",function(e){if(!fm||!fm.contains(e.target))reikna();});r.addEventListener("change",function(e){if(!fm||!fm.contains(e.target))reikna();});reikna();
})();
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.