KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › Vertical lyftihurð fyrir kæli og frysti frá Infraca

Vertical lyftihurð fyrir kæli og frysti frá Infraca

Vertical lyftihurð fyrir kæli og frysti frá Infraca

Vertical er rafknúin lyftihurð fyrir kæli- og frystiklefa frá Infraca á Spáni. Hún er gerð fyrir klefa og inngangssvæði þar sem ekki er pláss til hliðar fyrir rennihurð en nóg lofthæð. Hurðarblaðið lyftist beint upp eftir brautum úr ryðfríu stáli og hentar frá +0 °C niður í -40 °C í frystigöngum.

Tæknilegar upplýsingar

Hitastig+0 °C-20 °C-40 °C
Þykkt hurðarblaðs90–100 mm120 mm140 mm
Hitastrengur40 W/m50 W/m
  • Hámarks ljósop: 4,5 m breidd × 5,5 m hæð. Aðrar stærðir eftir fyrirspurn
  • Karmur: L-laga álprófílar með kuldabroti, 20 µm anodíseraðir eða hvítlakkaðir. Undirkarmur úr hvítlökkuðu áli fyrir allar þykktir klefaeininga
  • Hurðarblað: sprautað pólýúretan (40–45 kg/m³), leggst yfir karminn, með anodíseraðri álumgjörð
  • Þétting: tvöfaldur samþrykktur EPDM-þéttilisti. Þéttiflötur, legur og skrúfur úr ryðfríu stáli AISI 304
  • Brautir: brautir, festingar og brautarhlífar úr AISI 304. Hlífarnar halda óhreinindum frá brautinni
  • Yfirstykki: klætt AISI 304/2B, með hallandi brún svo auðveldara sé að þrífa og ryk safnist ekki á vírana. Vírar eru faldir
  • Mótor: IP65 með keðjudrifi, 3 × 400 V 50 Hz, 0,45 / 0,8 / 1,1 kW, 20–24 sn./mín., rafrænir endarofar
  • Stjórnun: kemur forstillt, einföld forritun
  • Öryggi: ljósnemar í 2–2,5 m hæð sem snúa hurðinni við, fallvörn ef vír slitnar og þriðji öryggisvírinn

Klæðning og litir

Lakkað stál, ryðfrítt stál AISI 304/2B, PVC eða trefjaplast (GRP). Hvítt er staðallitur en aðrir litir fást.

Málsetning

  • Uppsetningarop: breidd = ljósop + 100 mm · hæð = ljósop + 50 mm
  • Breidd yfir brautir = ljósop + 290 mm
  • Heildarbreidd = ljósop + 526 mm (ljósop + 530 mm með lofthengdu yfirstykki)
  • Heildarhæð = 2 × hæð ljósops + 546 mm (2 × hæð ljósops + 655 mm með gormum)
  • Dýpt frá vegg: 304 mm, 354 mm með gormum
  • Gróp í gólf: 50 mm djúp, lengd = ljósop + 500 mm

Hurðin þarf því lofthæð sem nemur rúmlega tvöfaldri hæð ljósopsins.

Aukabúnaður

  • HTCP-stýring á hitastreng í frystihurðum, til að spara orku
  • Veggkarmur
  • Gluggi 300 × 300 mm með tvöföldu gleri, á kælihurðir
  • Forspenntir gormar við opnun

Ef klefinn hefur ekki annan útgang þarf að panta hurðina með innbyggðri gönguhurð, eða setja aðra hurð á lömum í klefann.

Kavidoors-fallhurðir eru á síðunni fallhurð fyrir kæli og frysti. Þar sem pláss er til hliðar eru rennihurðir frá Infraca annar kostur.

Gagnablað frá framleiðanda (PDF)

Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.