KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › Fallhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Fallhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Fallhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Fallhurð (guillotine) fyrir kæli- og frystiklefa, frá Kavidoors á Spáni. Hurðarblaðið rennur lóðrétt upp eftir stýrisbrautum, svo hurðin þarf ekkert pláss til hliðanna eða fyrir framan, bara lofthæð. Hún fæst fyrir 0 °C, −20 °C og −40 °C og hurðarblaðið er þykkara eftir því sem kaldara er.

Tæknilegar upplýsingar

  • Hitastig og þykkt hurðarblaðs: 0 °C – 100 mm · −20 °C – 120 mm · −40 °C – 140 mm
  • Hámarks ljósop: 4,5 m breidd × 5,5 m hæð
  • Karmur: L-laga álprófílar með tvöföldu kuldabroti, gerðir fyrir frost
  • Undirkarmur: úr áli og lagar sig að hvaða veggþykkt sem er
  • Hurðarblað: leggst yfir karminn, innri rammi úr anodíseruðu áli og PIR-kjarni 40–45 kg/m³. Tvöfaldur sveigjanlegur PVC-þéttilisti
  • Brautir: hurðarblaðið rennur á hjólum eftir lóðréttum brautum. Brautirnar í yfirstykkinu halla, sem auðveldar þrif og heldur óhreinindum frá vírunum
  • Mótor: IP65 með keðju, rafrænum endarofum og fallbremsu, 20–24 sn./mín., 0,45 / 0,8 / 1,1 kW, 3 × 400 V 50 Hz
  • Stýring: kemur foruppsett og fljótlegt að forrita
  • Öryggi: fallvörn ef vír slitnar, ljósnemar gegn árekstri sem snúa hurðinni sjálfkrafa við og 2,5 m CEDES-ljóstjald
  • Efni: ryðfrítt stál og anodíserað ál. Hreinlegur frágangur sem hentar í votrými og matvælaiðnað

Klæðning og litir

Lakkað stál, ryðfrítt stál AISI 304/2B, PVC, FRP eða PET, og flestir RAL-litir.

Málsetning

  • Karmur: breidd = ljósop + 265 mm · hæð = ljósophæð + 132 mm
  • Undirkarmur: breidd = ljósop + 190 mm · hæð = ljósophæð + 95 mm
  • Hurðarblað: breidd = ljósop + 70 mm
  • Brautir: hæð = (ljósophæð × 2) + 500 mm
  • Mótorás: í hæð ljósophæð + 1000 mm, breidd = ljósop + 500 mm
  • Dýpt frá vegg: 250 mm við brautir, 550 mm við mótor

Brautirnar ná sem sagt rúmlega tvöfalda ljósophæð upp, og lofthæðin í rýminu þarf að leyfa það.

Aukabúnaður

  • Gluggi 300 × 300 mm með tvöföldu gleri
  • Opnun með forspenntum gormum

Ef enginn annar útgangur er úr klefanum þarf að panta fallhurðina með gönguhurð á lömum í hurðarblaðinu, eða setja upp sérstaka hurð á lömum til viðbótar, sjá kæliklefahurðir og frystiklefahurðir.

Aðrar hurðir fyrir kæli og frysti: rennihurð, hraðhurð og loftveggur fyrir kæliklefa.

Gagnablað frá framleiðanda (PDF)

Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.