KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › Hraðhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Hraðhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Hraðhurð fyrir kæli- og frystiklefa

Hraðhurðir með dúk fyrir kæli- og frystiklefa, frá Kavidoors á Spáni. Þær eru gerðar til að halda niðri rakaþéttingu og kuldatapi í dyrum þar sem raki er mikill. Dúkurinn er sjálfviðgerandi og fer aftur á sinn stað eftir högg.

Þrjár gerðir eru í boði:

  • KRIAC – 3,5 mm dúkur, fyrir kæli við 0 °C
  • KRIAF – 5 mm dúkur, fyrir frysti við −20 °C. Hitun í dúk og brautum og mótor með innbyggðum hitara. Fyrir útihita upp að 10 °C
  • KRIAF-2L – tvöfaldur hitaður dúkur, niður í −30 °C, tveir mótorar með hitun. Fyrir útihita yfir 10 °C

Rúlluhurð fyrir 0 °C og −20 °C (KRIAC og KRIAF)

  • Brautir: anodíserað ál með slitsterkum pólýetýlen-þéttilista
  • Yfirstykki: ryðfrítt stál með loftþéttum vasa sem dúkurinn leggst í, svo loft sleppur ekki framhjá
  • Dúkur: plastdúkur sem stenst slit og upplitun og uppfyllir M2 í brunaflokkun. 5 mm dúkurinn hefur U-gildi 3,3 W/m²K. Mjúkur neðri kantur (SOFT EDGE)
  • No Frost: hitun í brautum, mótor og dúk kemur í veg fyrir ísmyndun í frystiklefa. Dúkur og mótor þola −20 °C
  • Mótor: 3 × 380/400 V + N + PE, 0,55 kW, 90 sn./mín., 60 Nm, IP65, hitavari 80 °C. Hraði hurðarinnar fer eftir stærð
  • Stjórnbox: stafræn stýring á stillingu og stöðu hurðar, IP54 ABS-kassi sem á að vera í plúshita, 220 V tenging (1P+N+T), skjár sýnilegur gegnum lokið og hægt að forrita utan frá
  • Öryggi: neyðarrofi inni, gerður fyrir lágt hitastig, og annar úti. Ljósnemi í yfirstykki sem snýr hurðinni við
  • Opnun: hnappur, togrofi, segullykkja í gólfi, ljósnemi, radar eða fjarstýring

Aukabúnaður: hvítlökkuð, UL-útfærsla, innbyggður loftveggur, tímastillir á opnun og allir íhlutir úr ryðfríu stáli 304.

Málsetning rúlluhurðar

  • Frítt gegnumgangsop: ljósop − 40 mm á breidd
  • Ljósop undir 2.800 mm: heildarbreidd = ljósop + 480 mm · heildarhæð = ljósophæð + 550 mm · kassi 500 mm hár · dýpt 330 mm
  • Ljósop yfir 2.800 mm: heildarbreidd = ljósop + 410 mm · heildarhæð = ljósophæð + 630 mm · dýpt 330 mm

Tvöfaldur dúkur niður í −30 °C (KRIAF-2L)

Tveir einangraðir dúkar opnast og lokast samtímis. Blásari neðst blæs heitu lofti á milli þeirra og það fer hring í lokuðu kerfi. Af því að heita loftið leitar upp er sogvifta neðst sem dregur það niður aftur. Yfirstykkið er einangrað að innan og hliðarstoðirnar eru einangraðar og hitaðar. Þannig er lítill raki í loftinu sem fer á milli forrýmis og klefa við opnun, og hvorki dúkurinn né klefinn safnar á sig ís.

  • Tveir mótorar með hitun og hitaðar brautir
  • Ljósnemar í þremur hæðum og vörn alla leiðina. Mjúkur neðri kantur sem gefur eftir
  • Endarofar til viðbótar við púlsgjafann (encoder)
  • Hægt að stýra hitun sjálfvirkt með hitastilli. Innbyggð orkueining lagar sig að umhverfishita
  • Þarf minna afl en hefðbundin lofthitun
  • Loftveggur á milli dúkanna fæst sem aukabúnaður
  • Málsetning: heildarbreidd = ljósop + 470 mm · heildarhæð = ljósophæð + 970 mm · yfirstykki 600 mm hátt og 760 mm djúpt · stoðir 460 mm djúpar

Ef hraðhurðin þarf að standa með einangraðri hurð má skoða tvöfalt hurðakerfi, þar sem hraðhurð og rennihurð vinna saman. Sjá líka loftvegg fyrir kæliklefa og strimlahurðir.

Gagnablað: hraðhurð fyrir 0 °C og −20 °C (PDF)
Gagnablað: hraðhurð með tvöföldum dúk (PDF)

Hurðirnar eru smíðaðar eftir ljósopi og fást í flestum RAL-litum. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.