Þjónustuhurðir á lömum og rennandi þjónustuhurðir frá Kavidoors á Spáni, til að loka af og skipta upp vinnu- og þjónusturýmum þar sem hiti er yfir frostmarki. Hurðin á lömum er ætluð fyrir gangandi umferð, til dæmis á rannsóknastofum, sjúkrahúsum, heilsugæslu, í hreinum rýmum og röntgenaðstöðu. Rennihurðin er notuð á lagerum og í vinnurýmum sjúkrahúsa og matvæla-, efna- og lyfjaiðnaðar, auk stórmarkaða, vörumiðstöðva, hótela og veitingastaða.
Þjónustuhurð á lömum
- Hurðarblað: 40 mm sprautusteypt, eitt eða tvö blöð
- Kantrammi: hvítlakkað ál, eða anodíserað ef blaðið er grátt eða úr ryðfríu stáli
- Karmur: silfuranodíseraðir álprófílar, fyrir einingavegg með undirkarmi eða fyrir múrvegg
- Þétting: sporöskjulaga EPDM-þéttilisti sem minnkar trekk og hávaða
- Handfang: tvíbogið ryðfrítt handfang sem krækist ekki í, og hlífðarplata
- Lamir: úr silfuranodíseruðu áli
- Læsing: lás fylgir öllum gerðum
- Hámarks ljósop: eitt blað 1,2 × 2,5 m · tvö blöð 2,5 × 2,5 m
Hurðin kemur forsamsett og er með góða hita- og hljóðeinangrun.
Málsetning – hurð á lömum
- Karmur: breidd = ljósop + 170 mm · hæð = ljósop + 85 mm
- Undirkarmur: breidd = ljósop + 190 mm · hæð = ljósop + 95 mm
- Uppsetningarop: breidd = ljósop + 90 mm · hæð = ljósop + 45 mm
Aukabúnaður – hurð á lömum
- Sami lykill að fleiri hurðum, snerill eða lykill og snerill saman
- Hurðarpumpa
- Rafopnun með hnappi eða fjarstýringu
- Segulhaldarar
- Panic-slá
- Samlæsing hurða (loftlás) og stjórnstöð fyrir margar hurðir
- Gluggi úr akrýlgleri, kringlóttur með ryðfríum ramma, ferhyrndur með álramma eða sporöskjulaga í gúmmíi
- Fellilisti neðst á hurðarblaði gegn trekk
- Karmur fyrir múrvegg
Rennandi þjónustuhurð
Rennihurðin fæst í tveimur útgáfum. Tecnik er með 40 mm hurðarblaði, en iðnaðarútgáfan er með 60 mm blaði og einkaleyfisvörðum búnaði frá Kavidoors sem kemur í veg fyrir að hurðin halli eða detti af brautinni.
- Hurðarblað (Tecnik): 40 mm, stálplata í álramma án suðu, hvítlakkað
- Einangrun: PIR, 40–45 kg/m³
- Braut: tveggja hjóla kerfi, braut og hjól úr 20 µm anodíseruðu áli, PVC-legur
- Efri braut: anodíseraður álprófíll með ryðfríum skrúfum og hlíf sem heldur óhreinindum frá brautinni
- Neðst: stýring í gólfi
- Handföng: að utan og innan
- Hámarks ljósop: 2,5 m breidd × 3 m hæð, mest 4 m²
Málsetning – rennihurð (Tecnik)
- Yfirstykki: lengd = 2 × ljósopsbreidd + 250 mm · hæð 130 mm
- Heildarhæð = ljósop + 160 mm
- Hurðarblað: breidd = ljósop + 100 mm · hæð = ljósop + 50 mm
- Karmur: breidd = ljósop + 180 mm · hæð = ljósop + 95 mm
Aukabúnaður – rennihurð
- Karmur fyrir múrvegg eða einingavegg
- L-laga karmur úr pressuðu áli með bakteríuþolnu RAL-lakki
- Gluggi úr akrýlgleri
- Sjálfvirk opnun með radar, segullykkju eða hnöppum
Klæðning og litir
Báðar gerðir fást með PET 55 µm, Granite HDX 55 µm, lökkuðu stáli 25 µm, ryðfríu stáli 304/316 eða fenólplötum, og í flestum RAL-litum.
Í kæli- og frystiklefa þarf einangraðar hurðir, sjá kæliklefahurðir og rennihurð fyrir kæli eða frysti. Þar sem mikið er farið um með trillur henta vængjahurðir frá Kavidoors sem opnast í báðar áttir.
Gagnablað – þjónustuhurð á lömum (PDF)
Gagnablað – rennandi þjónustuhurð Tecnik (PDF)
Hurðirnar eru smíðaðar eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.