Strimlatjöld frá Infraca á Spáni, föst eða rennandi, fyrir kæliklefa (+0 °C) og frystiklefa (−20 °C). Þau eru mikið notuð í kjöt- og fiskvinnslu og í smærri verslunum og stórmörkuðum. Allar festingar eru úr ryðfríu stáli og hægt er að skipta um hvern strimil fyrir sig.
Tæknilegar upplýsingar
- Hámarks ljósop: 4 m breidd × 6 m hæð, önnur mál eftir fyrirspurn
- Strimlar: sveigjanlegt, gegnsætt PVC með bláum blæ, gert fyrir lágt hitastig
- Breidd og þykkt strimla: 200 × 3 mm í kæliklefa, 200 × 5 mm í frystiklefa
- Skörun: 40–60 mm milli strimla
- Festingar: burðarrör, millistykki og klemmur úr 1,5 mm ryðfríu stáli AISI 304 2B, skrúfur líka úr ryðfríu stáli
- Rennandi útgáfa: braut og sleði úr 20 µm anodíseruðu áli með PVC-hjólum, kemur forsamsett
- Uppsetning: í loft eða á vegg
Festingin snýst um einn ás, sem lengir líftíma strimlanna. Hverja festingu má taka niður eina og sér.
Aukabúnaður
- L-laga karmur úr hvítlökkuðu áli, með undirkarmi úr sama efni
Almennar upplýsingar um strimlahurðir eru á síðunni strimlahurðir. Þar sem þörf er á lokaðri hurð í sama op má skoða kæliklefahurðir og frystiklefahurðir.
Gagnablað frá framleiðanda (PDF)
Strimlatjöldin eru smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.