Athugið: Allir lokar og varahlutir sem nefndir eru hér eru sérpantaðir hjá KGG og ekki til á lager. Hafðu samband og þú færð verð og afhendingartíma.
Mörg ammoníakkerfi á Íslandi voru sett upp á árunum 1970–2000 og eru enn í fullum rekstri. Það er gott, en framleiðendur hætta smám saman með vörulínurnar sem notaðar voru í þeim. Hér er yfirlit yfir algengustu lokana sem eru hættir eða að hætta, og hvað kemur í staðinn.
Danfoss SCV, SCH, STA og RCV – varahlutir ekki lengur fáanlegir
Danfoss hefur hætt sölu á öllum varahlutum í lokana SCV, SCH, STA og RCV, í öllum stærðum. Þetta eru eldri lokar sem upphaflega voru frá Danvalve og voru settir upp á árunum 1970–1990. Sérstaklega SCV lokarnir eru í miklum fjölda í kerfum enn í dag.
Stöku þéttingar geta fengist annars staðar, en ekki er hægt að treysta á það. Ef þessir lokar eru í þínu kerfi er skynsamlegt að:
- skrá hvar þeir eru og hversu margir,
- láta tæknimenn og innkaupafólk vita að varahlutir fást ekki lengur,
- skipuleggja útskipti áður en loki bilar, frekar en á meðan kerfið stendur.
Við hjálpum þér að finna nýrri Danfoss loka sem koma í staðinn.
Danfoss EVRA/T 10–20 segulloki – hættur
Danfoss selur ekki lengur EVRA/T 10–20 segullokann. Í staðinn kemur ICF 15/20 EVRAT lokastöð með síu, eða ICF 20 til suðu ef lokinn er stakur.
Ef EVRA/T er með FA síu
ICF EVRAT lokastöðin er með sömu smíðamál og gamla samsetningin EVRA með FA síu og passar því í sömu flansa. Þar er einfaldlega skipt.
Ef EVRA/T er stakur
Þá eru tvær leiðir:
- Skera annan flansinn burt og færa hann á nýjan suðustað svo ICF 15/20 EVRAT passi.
- Skera báða flansana burt og sjóða ICF 20 beint inn í lögnina.
Herl T21 öryggisloki – tvær leiðir til að skipta út
Herl T21 öryggislokar eru víða í eldri kerfum. Það eru tvær góðar leiðir til að skipta þeim út:
Danfoss SFA 15
Með sérstökum millinippli frá Danfoss passar SFA 15 í núverandi T19 skiptiloka. Útblásturslögnin hækkar um 30 mm. Flutningsgetan er nánast sú sama, eða 1.504 kg/klst hjá T21 og 1.492 kg/klst hjá SFA 15 við 20 bar (R717). Kosturinn er að varahlutir í Danfoss loka eru vel fáanlegir. Ef rúmmál hylkisins leyfir getur minni SFA 10 dugað. Það þarf að reikna út, til dæmis í Danfoss Coolselector.
CAEN VBS með flansa
CAEN VBS fæst með flansa í stærðunum ½"–1" og 1"–1" og hefur sömu mál og Herl T21F. Það er því hægt að skipta beint án breytinga á lögnum. Við 22 bar er flutningsgetan 1.696 kg/klst hjá CAEN VBS og 1.649 kg/klst hjá T21F (R717).
Bitzer OS85 – athugaðu fóðringarnar í tengingunni
Bitzer OS85 skrúfupressur hafa verið á markaði í yfir 15 ár. Við skipti á öxulþéttingum hefur sést slit á fóðringum í tengingunni í sumum kerfum. Það er gott að skoða ástand þeirra við næstu þjónustu.
Ertu ekki viss um hvað er í kerfinu?
Sendu okkur mynd af merkiplötunni eða lokanum, gerð og stærð. Við finnum hvað kemur í staðinn og hvað þarf með, eins og flansa, pakkningar og nipla. Hringdu í 55-20000 eða sendu fyrirspurn á [email protected].
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.