Stólpar og varnargrindur frá Kavidoors sem verja hurðir, horn og veggi fyrir árekstrum. Þær eru úr gegnheilu háþéttni pólýetýleni (HDPE) með stálteini inni í. Við högg gefur vörnin eftir og réttir sig svo aftur, án þess að gólfið brotni. Viðhald er lítið og viðgerð fljótleg og ódýr.
Varnirnar eru skærgular. Litarefnið er í hráefninu sjálfu, svo ekkert er málað, og það er UV-varið. Efnið er 100% endurvinnanlegt.
Efni og festing
- Bolur: gegnheilt HDPE, hentar í snertingu við matvæli
- Teinn: stál A-4.6, 16, 20 eða 30 mm eftir stærð
- Þétting: neoprene-þétting á samskeytum
- Festing: teinninn situr í PVC-klæddu röri svo hægt er að skipta um hann; borað 150 mm niður í gólf
Stólpar
Henta til að verja innanverða hurðarkarma og horn, og á litlum svæðum.
- Ø 70 mm, hæð 266 mm
- Ø 100 og 120 mm, hæð 430 eða 530 mm
- Ø 120 mm, hæð 800 mm
- Ø 140 og 180 mm, hæð 430 mm
Háir stólpar, gegnheilir upp í 500 mm, til varnar og merkingar: Ø 110 mm × 1.000 mm og Ø 170 mm × 800, 1.000, 1.200 eða 1.500 mm.
Varnargrindur
Einföld grind ver veggi og búnað. Þvermál 70, 100 eða 120 mm, hæð 125–275 mm, lengd 500–2.500 mm á 2–4 fótum.
Tvöföld grind tekur högg í tveimur hæðum. Þvermál 70, 100 eða 120 mm, hæð 230–340 mm, lengd 500–2.000 mm á 2–3 fótum.
Sjá líka rennihurðir og kæliklefahurðir.
Gagnablað með öllum málum (PDF)
Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.