Tankar
Loft-í-vatn varmadæla þarf vatnsrými til að vinna vel. Án nægilegs
vatnsmagns í kerfinu fer dælan að ræsa sig og stöðva í sífellu — það styttir líftíma þjöppunnar
og skilar verri nýtni. Þess vegna fylgir forðakútur nánast alltaf loft-í-vatn kerfi.
Forðakútar
Forðakútur jafnar út vatnsmagnið í hringrásinni og gefur dælunni lengri og jafnari keyrslu.
Hann skiptir líka máli þar sem gólfhitasvæði lokast með hitastillum og vatnsrennslið dettur
niður.
Forðakútur SVH-50
Forðakútur SVH-100
Hitakútar fyrir neysluvatn
Hitakútur með varmaskipti tekur við hita frá varmadælunni og hitar neysluvatnið.
Tvöfaldur varmaskiptir gefur möguleika á að tengja annan hitagjafa við sama kút.
Hitakútur 300 L
Hitakútur með tvöföldum varmaskipti
Sambyggðir kútar
Sambyggður hitakútur og
forðakútur (250/60 L) leysir bæði hlutverkin í einni einingu og sparar pláss í
tæknirýminu — hentar þar sem ekki er rúm fyrir tvo kúta.
Hvaða stærð?
Stærðin ræðst af afli varmadælunnar, gerð hitakerfisins — gólfhiti geymir mun meira vatn en
ofnar — og neysluvatnsþörf heimilisins. Sendu okkur upplýsingar um kerfið og við förum yfir það
með þér: kgg@kgg.is — sími 55-20000.
Showing all 5 resultsSorted by popularity





