Sérpöntun: Varahlutirnir eru sérpantaðir og ekki til á lager. Sendu okkur gerð og raðnúmer pressunnar, ásamt vörunúmeri ef það er til, og við gefum þér verð og afhendingartíma. Sími 55-20000.
Grasso varahlutir fyrir ammoníakpressur
Grasso (GEA) er einn stærsti framleiðandi heims á stórum stimpilpressum. Við útvegum upprunalega varahluti (OEM) í nær allar Grasso stimpilpressur og allar Grasso skrúfupressur.
Það sem við útvegum
- Stimpilpressur: RC9, RC10, RC11, RC12, RC12E og V-línan
- Allar Grasso skrúfupressur
- Stimplar, slífar, upptektarsett, viðgerðarsett og öxulþétti
- Olíusíur, síusett og O-hringir
Varahlutalistar og síur
- Grasso RC11 varahlutalisti – allir varahlutir
- Grasso RC12 – rafknúin afkastastýring
- Grasso olíusíur fyrir stimpilpressur
- Grasso olíusíur og fínskiljur fyrir skrúfupressur
Hvernig pantar þú?
Gefðu upp gerð pressunnar og raðnúmer af merkiplötunni, ásamt upprunalegu vörunúmeri (OEM) og fjölda ef þú hefur það. Þá getum við útvegað rétta hlutinn í fyrsta sinn.

