Vængjahurðir fyrir kæli- og vinnslurými

PVC vængjahurðir sem opnast við snertingu og lokast sjálfar — halda hitastigi og loftflæði þar sem umferð er stöðug.

SKU: Vængjahurðir Category: Tag:

Vængjahurð er rétta lausnin þar sem gengið er um allan daginn og hefðbundin hurð
myndi standa opin.
Hún opnast við ýtu — með hendi, kerru eða lyftara — og lokast sjálf
aftur. Þannig helst hitamunurinn á milli rýma án þess að nokkur þurfi að stoppa.

Notkun

  • Milli vinnslusala og kælirýmis í matvælavinnslu
  • Milli eldhúss og veitingasalar
  • Milli lagers og verslunarrýmis
  • Fyrir framan klefahurð þar sem mikið er gengið um

Útfærslur

  • PVC vængjahurð — hálfgegnsætt PVC-blað
    með gegnsæjum glugga í augnhæð, þolir högg og þvott
  • Tvöföld hurð — tveir vængir fyrir breið op og lyftaraumferð
  • Höggvarin brún og árekstrarvarnir í karmi
  • Frostþolið efni fyrir op að frystirými — venjulegt PVC stífnar og brotnar í frosti

Þar sem hitamunurinn er meiri eða krafan um þéttingu strangari hentar
strimlahurð eða
rennihurð betur.
Sendu okkur mál á opinu og lýsingu á umferðinni: kgg@kgg.is —
sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top