Þéttikantar og þéttilistar fyrir klefahurðir

Þéttilistar í kæli- og frystiklefahurðir. Slitinn þéttikantur er algengasta orsök hrímmyndunar og hækkandi rafmagnsreiknings.

SKU: Þéttikantar Category:

Þéttikanturinn er ódýrasti hlutinn í klefanum og sá sem kostar mest þegar hann gefur sig.
Slitinn eða harðnaður listi hleypir röku lofti inn: hrím sest á blásarann, afþíðingin fer að
keyra oftar og þjöppan gengur lengur. Munurinn á rafmagnsreikningnum sést oft áður en nokkur
tekur eftir hrímmyndun.

Hvenær á að skipta

  • Hrím eða ís myndast við hurðarkarminn
  • Hurðin þarf átak til að opnast — eða opnast of létt
  • Þéttilistinn er harður, sprunginn eða heldur ekki lögun
  • Dagsbirta sést í rifunni þegar hurðin er lokuð
  • Þumalputtareglan: skoða árlega, skipta á 3–5 ára fresti í klefum með mikilli umferð

Það sem við eigum

  • Samþrykktir PVC-þéttilistar í hurðarblöð — kæli og frost
  • Segulþéttilistar fyrir minni hurðir og kæliskápa
  • Botnþéttingar við þröskuld
  • Strimlar fyrir op sem standa opin

Þéttilistar eru sjaldnast merktir. Sendu okkur mynd af þversniði listans og mál á hurðarblaðinu
og við finnum réttu gerðina: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top