Technoblock T / TS / TSD — veggfest monoblokk kælieining

Monoblokk sett í gegnum vegg klefans. 350–14.000 W, 2–430 m³, kæli- og frystiútgáfur.

SKU: TB-T Category:

Monoblokk er allt kælikerfið í einum kassa.

Þjappa, þéttir, eimari og stýring sitja saman í einni einingu sem er sett í gegnum gat á vegg klefans — þéttihlutinn út, eimarinn inn. Engin rörlögn milli hluta, engin lóðun á staðnum og engin kælimiðilsáfylling: einingin kemur fullhlaðin og prófuð frá verksmiðju.

T-línan spannar breiðasta bilið af öllum Technoblock línunum — frá tveggja rúmmetra skáp upp í 430 rúmmetra geymslu. TS og TSD eru minni afbrigði fyrir 2–29 m³ klefa.

Tæknilegar upplýsingar

UppsetningVeggfest — gegnum gat á vegg klefans
Hitastig+15/+5 og +5/−5 °C kæling · −18/−25 °C frysting
Kæliafl350 – 14.000 W (TS/TSD: 350 – 2.200 W)
Klefastærð2 – 430 m³ (TS/TSD: 2 – 29 m³)
KælimiðlarR-448A · R-449A · R-452A
ÞenslaHáræð (capillary)
ÖryggiHáþrýstiliði skv. tilskipun ESB 2014/68/ESB
FrystiútgáfaHurðarhitavír og sveifarhúshitari í stærri gerðum
UmhverfishitiYfir +10 °C — aukabúnaður þarf fyrir kaldara umhverfi

Monoblokk eða splitt?

Monoblokk er fljótlegri í uppsetningu, en þjappan situr í veggnum á klefanum og skilar bæði hávaða og varma inn í rýmið. Sé klefinn inni í eldhúsi eða verslun eru splitt-kerfin yfirleitt betri.

Allar gerðir og afköst

Hér eru allar gerðir T/TS/TSD-línunnar úr vörulistum Technoblock 2026. Gerðarheitið segir til um kælimiðil og hitastig, og við finnum réttu gerðina fyrir klefann þinn.

Hár hiti +15/+5 °C — afl við 10 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
TTH2005.210 W104 m³400/3/502,97 kW
TTH2505.730 W111 m³400/3/503,49 kW
TTH3007.545 W198 m³400/3/504,76 kW
TTH3019.530 W272 m³400/3/505,30 kW

Kæling +5/-5 °C — afl við 0 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
TSDTW030625 W5,8 m³230/1/500,72 kW
TSDTW050830 W7,7 m³230/1/500,76 kW
TSDTW060985 W10,4 m³230/1/500,97 kW
TSDTW0751.240 W14,1 m³230/1/501,21 kW
TSDTW1001.425 W15,1 m³230/1/501,45 kW
TTW3003.909 W66,3 m³400/3/503,11 kW
TTW3014.969 W86,2 m³400/3/504 kW
TTW4006.028 W138 m³400/3/504,78 kW
TTW5007.573 W181 m³400/3/505,97 kW

Frysting -18/-25 °C — afl við -22 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
TSDTF170635 W4,7 m³230/1/501,4 kW

Kæliafl miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn. Klefarúmmál miðast við einangrunarþykkt samkvæmt gagnablöðum Technoblock (venjulega 70 mm fyrir kælingu og 100 mm fyrir frystingu). Tölurnar eru úr vörulistum Technoblock 2026.

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top