Technoblock STZ-170 — splitt frystikerfi, 11–13 m³

Splitt frystikerfi niður í −22 °C fyrir klefa 11–13 m³. Loft- eða vatnskælt.

SKU: Tb-stz-170 L Category:

Í splitt-kerfi situr þjappan og þéttirinn utan klefans og
aðeins eimarinn inni. Það þýðir að hávaðinn og varminn frá þjöppunni fara ekki inn í rýmið
þar sem fólk vinnur — sem skiptir máli í eldhúsi, verslun eða vinnslu þar sem klefinn stendur
inni í húsi.

Minnsta frystigerðin. Athugaðu að vatnskælda útfærslan ræður við aðeins minni klefa en sú loftkælda.

Tæknilegar upplýsingar

GerðTechnoblock STZ-170 — splitt kerfi
NotkunFrystiklefi
Hitastig í klefa−22 °C — frysting
Klefastærð13 m³ loftkælt · 11 m³ vatnskælt
ÞéttirLoftkældur (L) eða vatnskældur (W)
VörunúmerTb-stz-170 L (loftkælt, 13 m³) · tb-stz170w021 (vatnskælt, 11 m³)

Loftkælt eða vatnskælt?

Þéttihlutinn þarf að losa varmann eitthvað. Loftkælt (L) blæs honum út
í loftið og er einfaldara — engin vatnslögn, ekkert að frjósa. Vatnskælt
(W) skilar varmanum í vatnslögn og er lausnin þegar einingin situr í lokuðu rými þar sem
ekki má hita upp umhverfið, eða þegar ekki er hægt að koma þéttinum út.

Hafðu samband

Sendu okkur stærð klefans, hitastigið sem þú þarft og hvort þú getur losað varmann út
eða í vatn — við förum yfir valið og gerum tilboð:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig yfirlit yfir
öll Technoblock kerfin
.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top