Bi-block (splitt) þýðir að kerfinu er skipt í tvennt:
þéttieining með þjöppu utan klefans og eimari í lofti
klefans. Á milli fara forfylltar leiðslur með hraðtengjum, þannig að ekki þarf að lóða á
staðnum. Hávaðinn og varminn frá þjöppunni verða eftir utan við kældu rýmið.
S-línan er algengasta veggfesta útfærslan — þéttieiningin hangir á vegg rétt utan við klefann og tekur ekkert gólfpláss.
Tæknilegar upplýsingar
| Gerð | Technoblock S — bi-block (splitt) |
|---|---|
| Uppsetning | Þéttieining á vegg utan klefans, eimari í lofti inni |
| Kæling (TN) | +5 / −5 °C — 500–5.184 W, 3,1–76,8 m³ |
| Frysting (TB) | −18 / −25 °C — 425–3.209 W, 2,8–56,3 m³ |
| Kæliafköst | 425–5.184 W |
| Klefastærð | 2,8–76,8 m³ |
| Kælimiðlar | R-452A · R-448A · R-449A |
Staðalbúnaður
- Rafeindastýring með fjarstýriborði — 5 m kapall, allt að 20 m sé þess óskað.
- Þrýstiliðar samkvæmt þrýstibúnaðartilskipun ESB 2014/68/EU.
- Sía á vökvalínu og vökvasafnari með öryggisloka (eftir gerð).
- Affrysting og frárennsli þéttivatns með hitaþræði.
- Hurðarhitaþráður á frystiútfærslum.
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá Technoblock á Ítalíu. Hafðu samband og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð — sjá einnig
splitt-kerfin STX og STZ.
Hafðu samband
Sendu okkur stærð klefans, hitastigið sem þú þarft og hvar einingin á að sitja — við
förum yfir valið, staðfestum gerð og gerum tilboð:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.
Sjá einnig yfirlit
yfir öll Technoblock kerfin og
fullbúin kælikerfi.

