CMMR-S er fjölpressukerfi með hálflokuðum þjöppum — þeim sem hægt er að opna og gera við.
Það er stóri munurinn frá CMMR-H. Hálflokuð þjappa er dýrari í innkaupum en hana má taka í sundur: skipta um ventlaplötu, legur, stimpla eða pakkningar í stað þess að henda þjöppunni. Í kerfi sem gengur allan sólarhringinn allt árið borgar sá munur sig fljótt.
Kerfið nær líka lengra niður — allt í −30 °C.
Tæknilegar upplýsingar
| Þjöppur | 2, 3 eða 4 hálflokaðar, allar jafnstórar |
|---|---|
| Hitastig | Hátt +5/0 °C · Miðlungs −5/−10 °C · Lágt −25/−30 °C |
| Kælimiðlar | R-452A (aðal) · R-449A · R-448A |
| Lagnir | Fulleinangruð soggrein með sér lögn frá hverri þjöppu; olíugrein með krana á hverri lögn |
| Lokar | Sog- og þrýstikranar og styrktur bakrennslisloki á hverri þjöppu |
| Grind | Galvaníseruð og lökkuð, stillanlegir dempufætur og hallamál |
| Afhending | Þrýstiprófað, rafmagnsprófað, forfyllt með pólýólesterolíu, sent undir helíumþrýstingi |
Fyrir hverja?
CMMR-S er byggt fyrir matvælavinnslu og aðra staði þar sem kerfið stoppar aldrei. Ef þú ert að þjóna verslunarkælum eða veitingaeldhúsi er CMMR-H hagkvæmara.
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.
Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

