Frystiklefi eftir máli — klefi sem passar í rýmið

Frystiklefar sniðnir að rýminu: horn, súlur, lyftarahlið og þröskuldslausar hurðir. Einingar á lager hjá KGG.

SKU: Sérsmíðaðir frystiklefar Category:

Stundum þarf klefinn að laga sig að rýminu en ekki öfugt.
Þegar súla stendur í miðju gólfi, loftið hallar eða klefinn þarf að ganga í kringum horn er
hægt að sníða eininguna að aðstæðum í stað þess að þvinga staðlaða stærð inn í plássið.

Dæmi um lausnir

  • L-laga og hornaðir klefar — klefinn fylgir rýminu og nýtir hvern fermetra
  • Súlur og bitar inni í klefanum — einingar skornar og þéttar utan um burðarvirki
  • Lyftarahlið og þröskuldslausar hurðir — styrkt gólfeining og árekstrarvarnir
  • Færibandaop — gegnumtak fyrir vinnslulínu
  • Skiptir klefar — kæli- og frystihólf í sama skrokki með einangraðri milliveggeiningu
  • Loft- eða vatnskælt vélakerfi eftir því hvað rýmið leyfir

Hvernig þetta gengur fyrir sig

Þú sendir okkur mál eða teikningu af rýminu — eða bara myndir og grófar tölur. Við förum yfir
hvað þarf af einingum, hurðum og vélabúnaði, reiknum kæliaflið út frá vörunni sem á að geyma og
skilum tilboði með þessu sundurliðuðu. Einingarnar eru til á lager svo afhendingartíminn ræðst
ekki af Evrópupöntun.

Reiknaðu klefann þinn

Notaðu klefareiknivélina til að fá einingafjölda, vinkla og lista út frá þeim málum sem þú hefur í huga — og kæliaflsreiknivélina til að finna rétta vélastærð miðað við vöru, hitastig og daglegt innlegg. Sendu okkur svo niðurstöðuna og við gerum tilboð.

Ráðgjöf og tilboð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top