Rörarennan er grunneiningin í frágangi utanhúss. Í henni liggja
kælirörin, rafmagnstaugin og þéttivatnsslangan saman í einum stokk — í stað þess að
lagnabúntið hangi óvarið utan á veggnum.
- Lengd: 2 m — söguð niður í rétta lengd á staðnum
- Lok smellist á rennuna eftir að lagnirnar eru komnar í
- Ver lagnirnar fyrir veðri, sól og hnjaski
Í horn og gegnumtök þarf tilheyrandi fittings:
hliðarbeygju,
yfirbeygju,
undirbeygju,
múffu og
endalok.
Rennukerfið er byggt upp úr stökum einingum sem smellast saman. Sjá alla frágangshluti — eða sendu okkur mynd af lagnaleiðinni og við setjum saman listann: kgg@kgg.is, sími 55-20000.

