Ammoníak (R-717) er kælimiðill íslensks iðnaðar — fiskvinnslu, frystihúsa og stórra frystigeymslna.
NH3 hefur GWP 0 og ósoneyðingarmátt 0 og fellur alfarið utan F-gas reglugerðar. Varmafræðileg nýtni er sú hæsta sem völ er á sem skilar verulegum orkusparnaði í stórum kerfum, og efnið er ódýrt á kíló. Ammoníak er flokkað B2L — eitrað og lítillega eldfimt — sem þýðir að kerfin krefjast vélarýmis með gasskynjun, loftræstingu og neyðarstöðvun. 502 kg bambinn er staðaleiningin fyrir áfyllingu iðnaðarkerfa.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: Ammoníak — NH3 / R-717 (náttúrulegur)
- Umbúðir: 502 kg bambi
- GWP: 0 — ósoneyðingarmáttur 0
- Öryggisflokkur: B2L — eitrað, lítillega eldfimt
- Smurolía: Mineral eða PAO
- Notkun: Fiskvinnsla, frystihús, frystigeymslur, iðnaðarkæling
- Athugið: Fellur ekki undir F-gas reglugerð — ekkert mengunargjald
Bambarnir okkar eru nýir, reglulega yfirfarnir og vottaðir — úttekt og þrýstiprófun í samræmi við kröfur um þrýstihylki. Ammoníak fæst einnig í 127 lítra hylki og 64 lítra hylki.
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

