Kælimiðill R-507A — bambi 690 kg (Freon™ 507)

Freon™ 507 (R-507A) í 690 kg bamba. Stærsta einingin fyrir stór lághitakerfi og þjónustuaðila sem fylla eigin kúta.

SKU: FRE-Bambi-507 Category:

R-507A í bamba — 690 kg í einni einingu.

Bambinn er ætlaður stórnotendum: fiskvinnslum, frystigeymslum, skipakerfum og þjónustuaðilum sem fylla eigin kúta. Verð á kíló er lægra en í flösku eða kút og umbúðaumsýslan minni.

R-507A er azeótrópískur og hegðar sér eins og hreinn miðill — engin hitarenna og engin hlutfallaskekkja við leka. Það gerir hann áfram gagnlegan í stórum lághitakerfum þar sem stilling á þenslubúnaði þarf að vera nákvæm.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-507A — Chemours Freon™ 507
  • Umbúðir: 690 kg bambi (endurfyllanlegur)
  • GWP (AR4): 3.985
  • Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
  • Gerð: Azeótrópísk blanda (R-125 / R-143a) — engin hitarenna
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Stór lághitakerfi, frystigeymslur, fiskvinnsla, skipakerfi
  • Aðrar umbúðir: Einnig til í 9,6 kg kút og 50 kg flösku

Hátt GWP — hugsaðu fram í tímann

R-507A hefur GWP upp á 3.985 og fellur undir þrengstu kvótana í F-gas reglugerðinni. Miðillinn verður áfram til fyrir kerfi sem eru í rekstri, en ef þú ert að byggja nýtt eða endurnýja stórt kerfi borgar sig að reikna dæmið með R-449A eða ammoníaki. Við förum yfir valkostina með þér.

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi.
Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™
kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði
framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt
F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það.
Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hafðu samband fyrir verð og afhendingu:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top