R-407F er millistigslausn fyrir kerfi sem voru hönnuð fyrir R-404A eða R-22.
R-407F skilar hærri kæliafköstum og lægri útþrýstihita en R-404A og hefur GWP 1.825 í stað 3.922. Það hentar sérstaklega í eldri miðlungs- og lághita kerfum þar sem skipt er yfir án þess að endurhanna kerfið. Hitasviðið (glide) er um 6 K, sem þarf að taka tillit til við stillingu þensluventils og við ákvörðun yfirhitunar. Í nýjum kerfum og við stærri umbreytingar mælum við frekar með R-449A.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-407F
- Umbúðir: 10 kg einnota kútur
- GWP (AR4): 1.825
- Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
- Kemur í stað: R-404A og R-22 í miðlungs- og lághitakerfum
- Smurolía: POE (pólýólester)
- Hitasvið (glide): um 6 K — stilla þarf þensluventil
- Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

