R-407C í 55 kg flösku — fyrir loftkælingu og millihitakerfi sem taka stóra fyllingu.
R-407C var hannaður sem beinn arftaki R-22 og er enn algengasti miðillinn í eldri loftkælikerfum og vatnskældum kerfum hér á landi. Afköst og þrýstingur liggja nálægt R-22, þannig að skipti krefjast yfirleitt ekki nýrrar þjöppu eða nýrra varmaskipta — en skipta þarf yfir í POE-olíu.
Miðillinn er sambræðingur með umtalsverða hitarennu, um 7 °C. Það hefur tvennt í för með sér: hann verður alltaf að fyllast á vökvaformi, og stilla þarf yfirhitun og undirkælingu út frá meðalhita en ekki mettunarhita á mæli.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-407C — Chemours Freon™ 407C
- Umbúðir: 55 kg endurfyllanleg flaska með vökvaupptöku
- GWP (AR4): 1.774
- Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
- Gerð: Sambræðingur (zeotropic), R-32 / R-125 / R-134a
- Hitarenna (glide): u.þ.b. 7 °C — fyllist ávallt á vökvaformi
- Kemur í stað: R-22
- Smurolía: POE (pólýólester)
- Notkun: Loftkæling, varmadælur, millihitakerfi, vatnskæld kerfi
- Aðrar umbúðir: Einnig til í 10 kg kút
Að skipta úr R-22
Þegar skipt er úr R-22 yfir í R-407C þarf að tæma steinolíuna (mineral) úr kerfinu og skipta í POE. Það kallar oftast á tvær til þrjár olíuskolanir og nýjan þurrkara. Við förum yfir ferlið með þér og útvegum þurrkara og íhluti sem þarf.
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi.
Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™
kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði
framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt
F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það.
Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hafðu samband fyrir verð og afhendingu:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

