R-404A í bamba — 650 kg af kælimiðli í einni einingu.
Bambinn (e. drum) er stærsta umbúðaeiningin sem við bjóðum. Hann er ætlaður þeim sem nota mikið magn: stórum frystigeymslum, fiskvinnslum, skipakerfum og þjónustuaðilum sem fylla eigin kúta. Verð á kíló er lægra en í kút eða flösku og þú sparar bæði umbúðagjöld og ferðir eftir efni.
R-404A er enn í fullri notkun í eldri lág- og millihitakerfum. Athugaðu að GWP er hátt (3.922) og F-gas kvótinn þrengist — ef þú ert að endurnýja kerfi eða skipta um miðil er rétt að skoða R-449A í staðinn.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-404A — Chemours Freon™ 404A
- Umbúðir: 650 kg bambi (endurfyllanlegur)
- GWP (AR4): 3.922
- Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
- Smurolía: POE (pólýólester)
- Notkun: Lág- og millihitakerfi, frystigeymslur, fiskvinnsla, stórnotendur
- Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)
- Aðrar umbúðir: Einnig til í 10 kg kút og 50 kg flösku
Aðrar stærðir af R-404A
10 kg kútur fyrir þjónustuvinnu og 50 kg flaska fyrir meðalstór verk. Bambinn borgar sig þegar magnið fer yfir nokkur hundruð kíló á ári.
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi.
Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™
kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði
framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt
F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það.
Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hafðu samband fyrir verð og afhendingu:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

