R-32 í einnota hylki — fyrir áfyllingu og þjónustu þar sem lítið magn dugar.
R-32 (díflúormetan) er ríkjandi miðill í nýjum loftkælingum og loft-í-vatn varmadælum. Hann er hreinn miðill, ekki blanda — engin hitarenna, engin hlutfallaskekkja við leka, og hægt að fylla á gasformi. Rúmmálsafköst eru um 20 % hærri en á R-410A, þannig að kerfið kemst af með minni fyllingu.
Einnota hylkið hentar þjónustuaðilum sem þurfa að fylla á eina eða tvær varmadælur og vilja ekki bera stóran kút. Fyrir stærri verk mælum við með 10 kg endurfyllanlega kútnum.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-32 — díflúormetan (HFC-32)
- Umbúðir: Einnota hylki
- GWP (AR4): 675
- Öryggisflokkur: A2L — lítillega eldfimt, lítil eiturhrif
- Gerð: Hreinn miðill — engin hitarenna
- Smurolía: POE (pólýólester)
- Notkun: Loftkæling, loft-í-vatn varmadælur, split-kerfi
- Aðrar umbúðir: Einnig til í 10 kg endurfyllanlegum kút
Skil á einnota umbúðum
Einnota hylkjum má ekki henda í almennt sorp og ekki má endurfylla þau. Skilaðu þeim til okkar eða á móttökustöð fyrir spilliefni. Mengunargjald leggst á einnota umbúðir samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Meðhöndlun eldfims kælimiðils
Þessi miðill er eldfimur. Kerfi sem nota hann þurfa viðeigandi lekaskynjun, loftræsingu og
íhluti sem eru vottaðir fyrir eldfima miðla. Vinna við kerfið krefst réttinda og verkfæra sem
eru ætluð eldfimum miðlum — notaðu aldrei sama endurheimtubúnað og fyrir A1-miðla án
hreinsunar. Við förum yfir kröfurnar með þér ef þú ert að hanna eða breyta kerfi.
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi.
Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™
kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði
framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt
F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það.
Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hafðu samband fyrir verð og afhendingu:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

