Við eigum klefaeiningarnar alltaf til á lager. Það þýðir að þú þarft ekki
að panta heilan klefa frá Evrópu og bíða í sex til átta vikur. Þú færð einingarnar, vinklana,
listana og hurðina hjá okkur og klefinn rís á þeim málum sem henta rýminu.
Hvernig klefinn er byggður
Klefinn er settur saman úr 100 mm einangrunareiningum (E-panel) með innbyggðu
læsikerfi. Þykktin er sú sama hvort sem um kæli- eða frystiklefa er að ræða — 100 mm dugar fyrir
bæði +2 °C kælingu og −25 °C frost við íslenskar aðstæður. Engin sérverkfæri þarf; einingarnar
smella saman og hægt er að taka klefann í sundur síðar, stækka hann eða flytja.
Það sem þarf í klefann
- Veggir og loft — 100 mm einingar í hvítu, sjá
klefaeiningar - Horn og frágangur — vinklar 50×50 og
150×50, gólflistar og þéttilistar - Hurð — kæliklefahurð,
frystiklefahurð,
rennihurð eða
strimlahurð - Gólf — gólfeiningar ofan á plötu eða klefinn beint á steypt gólf
- Kælikerfi — þjöppur og
blásarar, loft- eða
vatnskæld, með stýringu og afþíðingu. Við eigum kerfin vanalega til. - Öryggisbúnaður — neyðaropnun
og viðvörun, skylda í öllum klefum sem hægt er að ganga inn í
Kæliklefi eða frystiklefi?
- Kæliklefi (0 til +5 °C) — matvælageymsla, veitingahús, verslanir.
Hurð með 60 mm hurðarblaði, engin hitun nauðsynleg. - Frystiklefi (−18 til −25 °C) — sjá sérstaka síðu um
frystiklefa. Hurð með 80 mm blaði og hitakapli í karmi,
og hitun undir gólfi til að verja plötuna gegn frostlyftingu.
Stærðir
Klefinn getur verið nánast hvaða stærð sem er — frá tveggja fermetra skáp upp í frystigeymslu.
Einingarnar eru hvítar og fást í föstum breiddum; reiknivélin sýnir hvernig þær raðast upp á
þau mál sem þú slærð inn.
Reiknaðu klefann þinn
Notaðu klefareiknivélina til að fá einingafjölda, vinkla og lista út frá þeim málum sem þú hefur í huga — og kæliaflsreiknivélina til að finna rétta vélastærð miðað við vöru, hitastig og daglegt innlegg. Sendu okkur svo niðurstöðuna og við gerum tilboð.
Ráðgjöf og tilboð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

