Danfoss SVA-S lokunarloki – vinkilútgáfa, DN 50–250

Sérpöntun. Heill handstýrður lokunarloki í vinkilútgáfu með DIN-suðutengingu, fyrir stórar lagnir í iðnaðarkælikerfum. Stærðir frá DN 50 upp í DN 250.

SKU: NH3-SP-105 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Við pöntum þessa vöru sérstaklega fyrir hverja pöntun. Hún er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.

Danfoss SVA-S lokunarloki – vinkilútgáfa, DN 50–250

Í stórum lögnum skiptir máli að lokunarlokinn hleypi miklu í gegn þegar hann er opinn og loki örugglega þegar á þarf að halda. Danfoss SVA-S er hannaður með hagstæða flæðiseiginleika og er auðvelt að taka hann í sundur og gera við. Vinkilútgáfan sparar beygju í lögninni og gefur hæsta Kv-gildið í hverri stærð.

Eiginleikar

  • Kv-gildi frá 80 m³/klst (DN 50) upp í 1.168 m³/klst (DN 200)
  • Hámarksvinnuþrýstingur 52 bar, 65 bar útgáfur einnig til
  • Hús og lok úr kuldaþolnu stáli, boltar úr ryðfríu stáli A2-70
  • Suðutenging samkvæmt DIN (EN 10220)
  • Tekur við flæði í báðar áttir

Lýsing

Opnun undir þrýstingi

Upp að DN 80 má opna og loka lokanum við fullan vinnuþrýsting. Í stærri stærðum er hámarksþrýstimunur 44 bar í DN 100, 33 bar í DN 125, 21 bar í DN 150 og 14 bar í DN 200.

Hetta eða handhjól

Hver stærð fæst með hettu eða handhjóli og fer pöntunarnúmerið eftir því, t.d. er SVA-S 50 í vinkilútgáfu með handhjóli 148B5700. SVA-S 250 fellur utan gagnablaðsins sem hér er stuðst við og við staðfestum tæknigögn fyrir þá stærð sérstaklega.

Notkun og svið

SVA-S í stórum stærðum er notaður sem aðallokunarloki á sog-, vökva- og heitgaslögnum í stærri ammoníakkerfum, til dæmis í frystihúsum, fiskvinnslum, sláturhúsum og kæligeymslum. Þar loka þeir af kerfishlutum við viðhald og breytingar.

Stærðir og gerðir

Gerð
Lokunarloki SVA-S 50 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 65 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 80 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 100 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 125 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 150 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 200 D, vinkilútgáfa
Lokunarloki SVA-S 250 D, vinkilútgáfa

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
GerðSVA-S lokunarloki, SVL Flexline (lokahús + virknieining)
ÚtgáfaVinkilútgáfa
Tenging (D)Suða DIN (EN 10220)
Hámarksvinnuþrýstingur52 bar (65 bar útgáfur fáanlegar)
Hitasvið−60/+150 °C
KælimiðlarAmmoníak (R717), CO2 (R744), HFC, HCFC og eldfimir kælimiðlar
Kv-gildiDN 50: 80 · DN 65: 120 · DN 80: 182 · DN 100: 313 · DN 125: 514 · DN 150: 785 · DN 200: 1.168 m³/klst
Efni húss og loksKuldaþolið stál P285QH+QT (EN 10222-4) / LF2 (ASTM A350)
Spindill og boltarRyðfrítt stál, boltar A2-70
BakþéttingMálmur upp í DN 65, PTFE frá DN 80
SamþykkiCE; flokkunarfélög m.a. DNV, BV, CRN og EAC
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top