Danfoss IPS 8 lofttæmir fyrir ammoníak

Sérpöntun. Sjálfvirkur, rafeindastýrður lofttæmir sem fjarlægir óþéttanlegar lofttegundir úr ammoníakkerfum frá allt að 8 lofttæmingarstöðum.

SKU: NH3-SP-177 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Við pöntum þessa vöru sérstaklega fyrir hverja pöntun. Hún er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.

Danfoss IPS 8 lofttæmir fyrir ammoníak

Loft og aðrar óþéttanlegar lofttegundir í ammoníakkerfi hækka þéttiþrýstinginn og þar með orkukostnaðinn. Danfoss IPS 8 tekur þetta verk að sér sjálfvirkt. Hann er sjálfstæð eining með eigin kælirás og rafeindastýringu, sinnir allt að 8 lofttæmingarstöðum (stækkanlegt í 16) og tengist stjórnkerfinu um Modbus.

Eiginleikar

  • Fyrir ammoníakkerfi (R717) allt að 10.000 kW
  • Allt að 8 lofttæmingarstaðir, stækkanlegt í 16
  • Eigin kælirás með R290, undir 150 g
  • Modbus RTU, byggður á Danfoss MCX stýringu
  • 230 V, 1 fasi, 50 Hz, 0,6 kW
  • Afhentur með suðuflansi, pakkningu og boltum

Lýsing

Engin ammoníaklykt í vélarsalnum

Með bubbler-settinu (084H5070) fara lofttegundirnar sem hleypt er út í gegnum vatn, svo vélarsalurinn haldist laus við ammoníaklykt.

Kröfur kerfisins

IPS 8 er ætlaður ammoníakkerfum með þéttiþrýsting yfir 6,5 bar. Hámarksvinnuþrýstingur á kerfishlið er 40 bar og hægt er að setja upp LLS 4000 hæðarrofa til að verja lofttæminn gegn of hárri vökvasúlu af ammoníaki.

Notkun og svið

IPS 8 hentar ammoníakkerfum allt að 10.000 kW, til dæmis í frystihúsum, fiskvinnslum, kæligeymslum og skautahöllum, þar sem loft í kerfinu kostar orku og rekstraröryggi.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
Danfoss IPS 8 lofttæmir084H5004
Bubbler-sett fyrir IPS 8084H5070

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
Kælimiðill kerfisAmmoníak (R717), mest 40 bar, −40/+60 °C
Kælimiðill lofttæmisR290, undir 150 g, mest 24 bar
LofttæmingarstaðirAllt að 8, stækkanlegt í 16
Fæðispenna230 V ±10 % AC, 1 fasi, 50 Hz
Straumur3,3 A (mest 8,38 A)
Afl0,6 kW (mest 1,93 kW)
VatnsþéttniIP55
Umhverfishiti−10/+43 °C
Mál (L × B × H)1051 × 441 × 703 mm
ÞyngdMest 100 kg
TengingSuðuflans DIN-EN, 32 mm (1 1/4")
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top