,

Danfoss ICS/ICLX viðgerðarsett

Sérpöntun. Viðgerðarsett fyrir Danfoss ICS aðalloka og ICLX tveggja þrepa segulloka, stærðir 25 til 150.

Sérpöntun: Varan er sérpöntuð og ekki geymd á lager hjá KGG. Hafðu samband í síma 55-20000 eða sendu fyrirspurn og við gefum þér verð og afhendingartíma.

Danfoss ICS/ICLX viðgerðarsett

Aðalloki sem lokar ekki þétt kostar orku og getur truflað stýringu alls kerfisins. Með Danfoss viðgerðarsetti er ICS eða ICLX lokinn gerður upp á staðnum, án þess að lokahúsið sé tekið úr lögninni. Settin eru til fyrir allar stærðir frá 25 upp í 150.

Eiginleikar

  • Passar í ICS aðalloka og ICLX tveggja þrepa segulloka
  • Stærðir 25, 32, 40, 50, 65/80, 100, 125 og 150
  • Lokahús situr áfram í lögninni
  • Upprunalegir Danfoss varahlutir

Lýsing

Sama sett fyrir ICS og ICLX

ICS og ICLX nota sömu ICV lokahúsin og því passar sama viðgerðarsettið í báðar gerðir af sömu stærð. Fyrir ICS 100–150 vísar Danfoss í sérstakt varahlutablað.

Notkun og svið

Notað við viðhald á ICS og ICLX lokum í soglögnum og heitgaslögnum ammoníakkerfa, til dæmis í frystihúsum og kæligeymslum.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
Viðgerðarsett ICS/ICLX 25027H2219
Viðgerðarsett ICS/ICLX 32027H3017
Viðgerðarsett ICS/ICLX 40027H4015
Viðgerðarsett ICS/ICLX 50027H5015
Viðgerðarsett ICS/ICLX 65/80027H6017
Viðgerðarsett ICS/ICLX 100
Viðgerðarsett ICS/ICLX 125
Viðgerðarsett ICS/ICLX 150

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
Passar íICS og ICLX 25–150
VörulínaICV Flexline
Kælimiðlar lokannaAmmoníak (R717), CO2 (R744), HFC og HCFC
Hitasvið lokanna−60/+120 °C
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top