Frágangur á varmadælum

Frágangurinn er það sem sést — og það sem endist. Sjálf varmadælan er
oftast fullkomlega í lagi tíu árum eftir uppsetningu; það er lagnaleiðin utan á húsinu sem
lítur illa út, lekur eða slitnar ef ekki er vandað til hennar frá byrjun.

Rörarennur og stokkar
Rörarennur hylja kælirör, rafmagn og þéttivatnsslöngu í einum snyrtilegum stokk utan á
húsinu. Kerfið er byggt upp úr rennum og fittings sem smellast saman:

Rörarennur — grunneiningin, söguð í lengd á staðnum
Hliðarbeygjur,
yfirbeygjur og
undirbeygjur — fyrir horn á húsinu
Múffur til að skeyta saman rennulengdir
Gegnumtak og flangs þar sem lögnin fer inn í vegg
Endalok á rennuendann
Veggjarhlíf yfir gatið á veggnum

Annað sem tilheyrir frágangi

Einangruð rör — kælirörin sjálf,
einangruð svo þau hrími ekki og tapi ekki afli
Undirstöður og upphengjur —
veggfestingar, þakundirstöður, svalaupphengjur og titringspúðar
Varmadæluskjól — hlífa
útieiningunni fyrir veðri, snjó og útliti
Vatnsfrágangur — þéttivatnslögn,
vatnslás og þéttivatnsdælur þar sem ekki er hægt að láta renna undan
Einangrunartape til að ganga frá samskeytum

Ertu ekki viss hvað þarf í þitt verk? Sendu okkur myndir af húsinu og staðsetningunni sem
þú hefur í huga: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Showing all 9 resultsSorted by price: low to high

Scroll to Top