Ammoníak varahlutir
Varahlutir fyrir ammoníakkerfi (R717)
Allar vörur í þessum flokki eru sérpantaðar. Þær eru ekki til á lager hjá KGG heldur pantaðar sérstaklega fyrir hverja pöntun. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.
Mörg af stærri kælikerfum landsins í frystihúsum, fiskvinnslum, kæligeymslum, mjólkurbúum og skautahöllum keyra á ammoníaki. Mörg þeirra voru sett upp fyrir áratugum. Þegar loki lekur, öryggisloki er kominn á tíma eða varahlutur er hættur í framleiðslu skiptir máli að fá réttan hlut fljótt. KGG útvegar varahluti og íhluti fyrir ammoníakkerfi frá viðurkenndum framleiðendum, með Danfoss í fararbroddi, og öryggisbúnað fyrir þá sem vinna við kerfin.
Í þessum flokki
Lokar og lokahús: Danfoss SVA og SVL Flexline lokunarlokar, SCA-X og CHV baklokar, REG stillilokar, FIA síur og SNV þjónustulokar
Öryggislokar: Danfoss SFA, SFV og BSV, DSV skiptilokar og CAEN VBS
Segullokar og lokastöðvar: Danfoss EVRA, ICF, ICS, ICSH, ICLX og ICM, pilotlokar og spólur
Viðgerðarsett og þéttingar: skoðunar-, viðgerðar- og upptektarsett fyrir algengustu Danfoss lokana
Stýringar og nemar: AKS þrýstinemar, AKS 4100 og LLS 4000 hæðarstýring og IPS 8 lofttæmir
Öryggisbúnaður: hlífðargallar, augnskol og skyndihjálp
Varahlutir í pressur: Sabroe, Stal, Gram, Bitzer, Mycom og Grasso
Eldri kerfi og hlutir sem eru hættir
Framleiðendur hætta reglulega með eldri vörulínur. Danfoss selur til dæmis ekki lengur varahluti í SCV, SCH, STA og RCV lokana, og EVRA/T 10–20 segullokinn er hættur. Í flestum tilvikum er til nýrri lausn sem passar í sama stað. Sendu okkur gerð og stærð gamla hlutarins, helst með mynd af merkiplötunni, og við finnum hvað kemur í staðinn.
Hvernig pantar þú?
Flestar vörur í þessum flokki eru sérpantaðar eftir gerð, stærð og þrýstingi. Sendu fyrirspurn með vörunni eða hringdu í 55-20000 og þú færð verðtilboð og afhendingartíma. Gott er að hafa með heiti og stærð (DN), stilliþrýsting fyrir öryggisloka og tegund og raðnúmer fyrir varahluti í pressur.
Showing 1–12 of 164 resultsSorted by popularity
-

Flotlokar og hæðargler9 Products
-

Kælimiðill2 Products
-

Lokar og lokahús19 Products
-

Mælar, verkfæri og öryggi8 Products
-

Olíur og pækill5 Products
-

Öryggislokar10 Products
-

Segullokar og lokastöðvar30 Products
-

Síur3 Products
-

Stýrilokar og spólur4 Products
-

Stýringar og nemar11 Products
-

Varahlutir í pressur61 Products
-

Viðgerðarsett og þéttingar25 Products



















