Freon™ MO79 (R-422A) er hannaður til að skipta beint inn á R-22 kerfi.
Aðalkosturinn er sá að ekki þarf að skipta um olíu — R-422A vinnur með mineral- og alkýlbensen-olíu sem fyrir er í eldri R-22 kerfum. Það gerir umbreytinguna ódýra og fljótlega: endurheimta R-22, skipta um þurrkfilter, fylla á R-422A. GWP er 3.143 sem er hátt, svo þetta er viðhaldslausn fremur en framtíðarlausn. Í stærri verkum mælum við frekar með R-449A.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-422A — Chemours Freon™ MO79
- Umbúðir: 11 kg kútur með vökvaupptöku
- GWP (AR4): 3.143
- Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
- Kemur í stað: R-22 — engin olíuskipti nauðsynleg
- Smurolía: Vinnur með mineral, AB og POE olíu
- Notkun: Umbreyting eldri R-22 kæli- og frystikerfa
- Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

