Kælimiðill R-404A — flaska 50 kg (Freon™ 404A)

Freon™ 404A í 50 kg endurfyllanlegri flösku fyrir stærri kerfi og kæliverktaka.

Stóra einingin af Freon™ 404A — 50 kg endurfyllanleg flaska.

Fyrir kæliverktaka, matvælavinnslur og skip sem fylla á stór R-404A kerfi. Verð á kíló er lægra en í kút og flaskan skilast til okkar tóm til endurfyllingar. Athugið að R-404A er í útfösun samkvæmt F-gas reglugerð — við mælum með að skoða R-449A í 55 kg flösku þegar kemur að næstu stóru viðgerð.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-404A — Chemours Freon™ 404A
  • Umbúðir: 50 kg endurfyllanleg flaska með vökvaupptöku
  • GWP (AR4): 3.922
  • Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
  • Arftaki: R-449A (Opteon™ XP40)
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Stór frysti- og kælikerfi, matvælavinnsla, skip
  • Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top