Freon™ 404A (R-404A) hefur verið burðarásinn í frysti- og kælikerfum í áratugi.
R-404A er enn í notkun í þúsundum kerfa á Íslandi og við höldum honum á lager fyrir viðhald og áfyllingar. Hafðu þó í huga að R-404A er í útfösun: GWP er 3.922, og F-gas reglugerðin hækkar verðið og þrengir framboðið ár frá ári. Þegar kemur að stærri viðgerð borgar sig að skipta yfir í R-449A — sömu afköst, 64% lægra GWP og engin kerfisbreyting nauðsynleg.
Tæknilegar upplýsingar
- Kælimiðill: R-404A — Chemours Freon™ 404A
- Umbúðir: 10 kg kútur með vökvaupptöku
- GWP (AR4): 3.922
- Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
- Arftaki: R-449A (Opteon™ XP40) eða R-452A (Opteon™ XP44)
- Smurolía: POE (pólýólester)
- Notkun: Frystiklefar, kæliklefar, verslunarkæling, ísvélar
- Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)
Chemours á Íslandi
Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.
F-gas reglur og afhending
Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.
Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

