Vængjahurð er rétta lausnin þar sem gengið er um allan daginn og hefðbundin hurð
myndi standa opin. Hún opnast við ýtu — með hendi, kerru eða lyftara — og lokast sjálf
aftur. Þannig helst hitamunurinn á milli rýma án þess að nokkur þurfi að stoppa.
Notkun
- Milli vinnslusala og kælirýmis í matvælavinnslu
- Milli eldhúss og veitingasalar
- Milli lagers og verslunarrýmis
- Fyrir framan klefahurð þar sem mikið er gengið um
Útfærslur
- PVC vængjahurð — hálfgegnsætt PVC-blað
með gegnsæjum glugga í augnhæð, þolir högg og þvott - Tvöföld hurð — tveir vængir fyrir breið op og lyftaraumferð
- Höggvarin brún og árekstrarvarnir í karmi
- Frostþolið efni fyrir op að frystirými — venjulegt PVC stífnar og brotnar í frosti
Þar sem hitamunurinn er meiri eða krafan um þéttingu strangari hentar
strimlahurð eða
rennihurð betur.
Sendu okkur mál á opinu og lýsingu á umferðinni: kgg@kgg.is —
sími 55-20000.

