Þéttikanturinn er ódýrasti hlutinn í klefanum og sá sem kostar mest þegar hann gefur sig.
Slitinn eða harðnaður listi hleypir röku lofti inn: hrím sest á blásarann, afþíðingin fer að
keyra oftar og þjöppan gengur lengur. Munurinn á rafmagnsreikningnum sést oft áður en nokkur
tekur eftir hrímmyndun.
Hvenær á að skipta
- Hrím eða ís myndast við hurðarkarminn
- Hurðin þarf átak til að opnast — eða opnast of létt
- Þéttilistinn er harður, sprunginn eða heldur ekki lögun
- Dagsbirta sést í rifunni þegar hurðin er lokuð
- Þumalputtareglan: skoða árlega, skipta á 3–5 ára fresti í klefum með mikilli umferð
Það sem við eigum
- Samþrykktir PVC-þéttilistar í hurðarblöð — kæli og frost
- Segulþéttilistar fyrir minni hurðir og kæliskápa
- Botnþéttingar við þröskuld
- Strimlar fyrir op sem standa opin
Þéttilistar eru sjaldnast merktir. Sendu okkur mynd af þversniði listans og mál á hurðarblaðinu
og við finnum réttu gerðina: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

