Sérpöntun: Þetta er sérpöntunarvara. Hún er pöntuð sérstaklega þegar þú pantar og er ekki til á lager. Verð og afhendingartími fást með fyrirspurn eða í síma 55-20000.
Tempress þrýstimælar fyrir ammoníak (R717)
Góður þrýstimælir sýnir þér bæði þrýsting og samsvarandi hitastig ammoníaksins í einni sjónhendingu. Tempress mælarnir eru glýserínfylltir, með kvarða fyrir R717 og nákvæmni í flokki 1,0. Hitajöfnun tryggir rétta mælingu við 0–60 °C umhverfishita og virkar einnig sem útblástursvörn.
Eiginleikar
- Glýserínfylltir með hitakvarða fyrir R717
- Nákvæmni flokkur 1,0 (±1 % af fullum kvarða)
- Hitajöfnun: rétt mæling við 0–60 °C umhverfishita
- Brún úr ryðfríu stáli AISI 316
- DNV-samþykki (A10)
Lýsing
Mismunaþrýstimælir A18
Mælir sogþrýsting og olíuþrýsting á pressum, eða þrýstifall yfir síu.
Tvöfaldur mælir A11
Fyrir tveggja þrepa kerfi, þar sem fylgst er með sog- og millþrýstingi eða milli- og þéttiþrýstingi á einum mæli.
Notkun og svið
Notaðir á pressur, hylki og lagnir í ammoníakkerfum, til dæmis í frystihúsum, fiskvinnslum, kæligeymslum og skautahöllum.
Stærðir og gerðir
| Gerð |
|---|
| Þrýstimælir DN 100 LP, −1/+12 bar |
| Þrýstimælir DN 100 HP, −1/+25 bar |
| Þrýstimælir DN 63, −1/+12 bar |
| Mismunaþrýstimælir DN 100, −1/+12 bar, olíuþrýstingur |
| Tvöfaldur þrýstimælir (duplex) DN 100, −1/+25 bar |
Tæknigögn
| Framleiðandi | TEMPRESS A/S (Danmörk) |
|---|---|
| Kælimiðlar | M.a. R717 (ammoníak), R744, R22, R134a, R404, R507 |
| Fylling | Glýserín |
| Hús | Svart emalerað stál eða AISI 304; AISI 316 sem valkostur |
| Brún | AISI 316 |
| Kvarði | −1/0/+12 bar og −1/0/+25 bar |
| Nákvæmni | Flokkur 1,0 (±1,0 % af fullum kvarða) |
| Hitajöfnun | Rétt mæling við 0–60 °C umhverfishita |
| Gerðir | A10: DN 63 A1001, DN 100 A1003; A18: DN 100 A1803; A11: DN 100 A1103 |
| Þvermál húss DN 100 | 108 mm |
| Samþykki | DNV (A10) |
| Afhending | Sérpöntun, ekki lagervara |

