Sérpöntun: Við pöntum þessa vöru sérstaklega fyrir hverja pöntun. Hún er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.
Danfoss LLS 4000 hæðarrofi
LLS 4000 skynjar hvort vökvi eða gas er fyrir framan nemahausinn og skiptir þá föstuefnisliða. Hann er yfirleitt settur upp í pörum, annar fyrir efri og hinn fyrir neðri hæðarmörk. Rofinn er viðhaldsfrír, þolir 140 bar og er stilltur með Bluetooth í Danfoss CoolConfig appinu. Hann getur meira að segja greint á milli fljótandi ammoníaks og olíu.
Eiginleikar
- Fyrir ammoníak (R717) og fleiri kælimiðla, einnig olíu allt að 5000 cP
- Hámarksvinnuþrýstingur 140 bar
- Hiti miðils −50/+120 °C
- Stilltur með Bluetooth, NO eða NC að vali
- M12 tengill, 24 V DC
- IP66/IP67, ryðfrítt 316L stál
Lýsing
Uppsetning
Danfoss mælir með láréttri uppsetningu. Suðumúffa G 3/4 fæst úr stáli (084H6012) eða ryðfríu stáli (084H6014).
Útskiptanlegur rafeindahluti
Rafeindatoppurinn er útskiptanlegur (084H6010, ekki fyrir SIL2-útgáfu). SIL2-útgáfur eru ekki stillanlegar og eru ætlaðar sem efri hæðarrofi.
Notkun og svið
LLS 4000 er notaður sem efri og neðri hæðarrofi á skiljum, dæluhylkjum og safnhylkjum í ammoníakkerfum í frystihúsum, fiskvinnslum og kæligeymslum, og til að greina olíu í botni hylkja.
Stærðir og gerðir
| Gerð | Vörunúmer framleiðanda |
|---|---|
| LLS 4000 G 3/4" | 084H6001 |
| LLS 4000 NPT 3/4" | 084H6003 |
| Suðumúffa G 3/4 fyrir LLS | 084H6012 / 084H6014 |
| Pakkningar fyrir skoðun á LLS | 084H6011 |
| M12 kapall fyrir LLS, 2 m | 034G2201 |
| M12 kapall fyrir LLS, 8 m | 034G2200 |
Tæknigögn
| Framleiðandi | Danfoss |
|---|---|
| Mæliaðferð | Örbylgjuspeglun |
| Miðlar | R717 (−50/+105 °C mettun), R22, R404A, R407A, R410A, R1234ze(E), PAO/POE/jarðolía |
| Fæðispenna | 24 V DC ±25 %, 80 mA |
| Útgangur | Föstuefnisliði, mest 30 V DC / 200 mA, a.m.k. 1.000.000 skipti |
| Hámarksvinnuþrýstingur | 140 bar |
| Hiti miðils | −50/+120 °C |
| Umhverfishiti | −40/+65 °C |
| Vatnsþéttni | IP66/IP67, NEMA 4X |
| Tenging | G 3/4" (LLS 4000) eða NPT 3/4" (LLS 4000U) |
| Raftenging | M12, 4 pinnar |
| Þyngd | 350 g |
| Afhending | Sérpöntun, ekki lagervara |

