Danfoss NRVA lokahús án flansa

Sérpöntun. Lokahús fyrir Danfoss NRVA bakloka, án flansa. Eitt hús þjónar tveimur stærðum, svo þú endurnýjar lokann og lætur flansana sitja í lögninni.

SKU: NH3-SP-165 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Við pöntum þessa vöru sérstaklega fyrir hverja pöntun. Hún er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.

Danfoss NRVA lokahús án flansa

Ef bakloki í lögninni er orðinn slitinn þarf ekki endilega að skera hann úr. NRVA er flansaður loki og lokahúsið er boltað á milli flansanna, svo hægt er að skipta því út og láta suðuflansana sitja áfram. Hvert hús passar fyrir tvær lokastærðir, 15/20, 25/32 og 40/50, og sérstakt hús er fyrir NRVA 65.

Eiginleikar

  • Án flansa, passar á núverandi NRVA flansa
  • Sama hús fyrir NRVA 15/20, 25/32 og 40/50
  • Stálhús, 40 bar hámarksvinnuþrýstingur
  • Dempunarstimpill og ryðfrí keila með teflonþéttihring
  • Fyrir ammoníak (R717), HCFC og HFC

Lýsing

Samsetning

Húsin eru afhent án flansa. Pakkningasett fyrir hvert stærðapar fæst sér og það er góð regla að nota nýjar pakkningar þegar lokinn er settur saman aftur.

Notkun og svið

Til viðhalds og endurnýjunar á NRVA baklokum í ammoníakkerfum, til dæmis í frystihúsum, kæligeymslum og mjólkurbúum.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
Lokahús NRVA 15-20020-2020
Lokahús NRVA 25-32020-2022
Lokahús NRVA 40-50020-2024
Lokahús NRVA 65020-2026

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
KælimiðlarAmmoníak (R717), HCFC og HFC
Hámarksvinnuþrýstingur40 bar
Hitasvið−50/+140 °C
Efni hússStál G20Mn5QT / P285QH
KeilaRyðfrítt stál með teflonþéttihring
Kv-gildi15: 5 · 20: 6 · 25: 19 · 32: 20 · 40/50: 44 · 65: 75 m³/klst
Þyngd án flansa1,4 kg (15–20), 3,0 kg (25–32), 5,0 kg (40–50), 13,0 kg (65)
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top