Danfoss ICS aðallokar – servóstýrðir stillilokar

Sérpöntun. Danfoss ICS eru stýrilokastýrðir aðallokar sem stjórna þrýstingi eða hita, eða virka sem segulloki, í sog-, heitgas- og vökvalögnum. Stærðir frá ICS 25 upp í ICS 150.

SKU: NH3-SP-144 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Þessi vara er ekki til á lager. Hún er sérpöntuð fyrir þig og afhendingartími kemur fram í verðtilboði. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000.

Danfoss ICS aðallokar – servóstýrðir stillilokar

Einn lokahús, margar lausnir: með því að skrúfa mismunandi stýriloka í Danfoss ICS aðallokann ræður þú hvort hann stillir þrýsting, stýrir hita eða opnar og lokar eins og segulloki. ICS er hluti af ICV Flexline og þolir allt að 65 bar. Hann er gerður fyrir ammoníak (R717) og CO2 og hentar jafnt í sog-, heitgas- og vökvalagnir.

Eiginleikar

  • Stillir þrýsting eða hita, eða virkar sem segulloki
  • Lok fyrir 1 eða 3 stýriloka, hægt að snúa í hvaða stöðu sem er
  • Kv-gildi frá 1,7 (ICS 25-5) upp í 354 m³/klst (ICS 150)
  • Fullopinn við 0,2 bar þrýstingsmun
  • Útskiptanlegt PTFE sæti á ICS 25–80

Lýsing

1 eða 3 stýrilokar

ICS með einu stýrilokatengi hentar fyrir eina aðgerð. Í ICS með þremur tengjum eru S1 og S2 raðtengd og P hliðtengt, svo hægt er að sameina til dæmis þrýstistýringu og segullokavirkni. Ónotuð tengi eru lokuð með blindtappa.

Stýrilokar fylgja ekki

Stýrilokar (CVP, CVC, EVM, CVE o.fl.) og spólur eru pantaðir sér. Pöntunarkóðarnir miðast við suðutengingu samkvæmt DIN. ICS má breyta í ICM mótorloka með því að skipta um virknieiningu og lok.

Notkun og svið

ICS aðallokar eru notaðir sem þrýstistillar í soglögnum, við heitgasafhrímingu og sem segullokar í stærri lögnum ammoníakkerfa, til dæmis í frystihúsum, sláturhúsum, mjólkurbúum og skautahöllum.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
ICS 25-5 DN 20 – lok fyrir 1 stýriloka027H2028
ICS 25-5 DN 20 – lok fyrir 3 stýriloka027H2078
ICS 25-5 DN 25 – lok fyrir 1 stýriloka027H2020
ICS 25-5 DN 25 – lok fyrir 3 stýriloka027H2070
ICS 25-10 DN 20 – lok fyrir 1 stýriloka027H2038
ICS 25-10 DN 20 – lok fyrir 3 stýriloka027H2088
ICS 25-10 DN 25 – lok fyrir 1 stýriloka027H2030
ICS 25-10 DN 25 – lok fyrir 3 stýriloka027H2080
ICS 25-15 DN 25 – lok fyrir 1 stýriloka027H2040
ICS 25-15 DN 25 – lok fyrir 3 stýriloka027H2090
ICS 25-20 DN 20 – lok fyrir 1 stýriloka027H2058
ICS 25-20 DN 20 – lok fyrir 3 stýriloka027H2108
ICS 25-20 DN 25 – lok fyrir 1 stýriloka027H2050
ICS 25-20 DN 25 – lok fyrir 3 stýriloka027H2100
ICS 25-25 DN 20 – lok fyrir 1 stýriloka027H2068
ICS 25-25 DN 20 – lok fyrir 3 stýriloka027H2118
ICS 25-25 DN 25 – lok fyrir 1 stýriloka027H2060
ICS 25-25 DN 25 – lok fyrir 3 stýriloka027H2110
ICS 32 DN 32 – lok fyrir 1 stýriloka027H3020
ICS 32 DN 32 – lok fyrir 3 stýriloka027H3030
ICS 40 DN 40 – lok fyrir 1 stýriloka027H4020
ICS 40 DN 40 – lok fyrir 3 stýriloka027H4030
ICS 50 DN 50 – lok fyrir 1 stýriloka027H5020
ICS 50 DN 50 – lok fyrir 3 stýriloka027H5030
ICS 65 DN 65 – lok fyrir 1 stýriloka027H6020
ICS 65 DN 65 – lok fyrir 3 stýriloka027H6030
ICS 80 DN 80 – lok fyrir 1 stýriloka027H8020
ICS 80 DN 80 – lok fyrir 3 stýriloka027H8030
ICS 100 DN 100027H7120
ICS 125 DN 125027H7140
ICS 150 DN 150027H7160

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
VörulínaICV Flexline
KælimiðlarAmmoníak (R717), CO2 (R744), HFC og HCFC
HámarksvinnuþrýstingurDN 25–65 (80): 65 bar; DN 100–150: 52 bar
Hitasvið miðils−60/+120 °C
Kv-gildiICS 25-5: 1,7; 25-10: 3,5; 25-15: 6,0; 25-20: 8; 25-25: 11,5; 32: 17; 40: 27; 50: 44; 65: 70; 80: 85; 100: 142; 125: 207; 150: 354 m³/klst
OpnunarþrýstingsmunurFullopinn við 0,2 bar; hlutfallsleg opnun á milli 0,07 og 0,2 bar
MOPD með segulstýriloka10 W AC: 21 bar; 20 W AC: 40 bar
TengingarSuða DIN, ANSI eða JIS, múffusuða, lóðning, innra snitti; ICV 100–150 aðeins suða
EfniLághitastál; PTFE sæti á ICS 25–80
YfirborðsvörnZinkkrómað; yfirmálun nauðsynleg eftir uppsetningu
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top