Danfoss ICF lokastöðvar – sía, segulloki og lokunarlokar í einu húsi

Sérpöntun. Danfoss ICF Flexline lokastöðvar sameina allt að sex virknieiningar í einu soðnu húsi. Ein lokastöð kemur í stað heillar raðar af lokum, síu og segulloka í vökvalögninni.

SKU: NH3-SP-132 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Þessi vara er ekki til á lager. Hún er sérpöntuð fyrir þig og afhendingartími kemur fram í verðtilboði. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000.

Danfoss ICF lokastöðvar – sía, segulloki og lokunarlokar í einu húsi

Færri suður, færri samskeyti og minna pláss: Danfoss ICF lokastöðin raðar lokunarloka, síu, segulloka, handopnara og stilliloka saman í eitt hús. Stöðin kemur fullsamsett og lekaprófuð frá verksmiðju og einn pöntunarkóði stendur fyrir eina lausn. Hún er gerð fyrir ammoníak (R717) og CO2 og nýtist í vökvafæðingu, innspýtingu og drenlögnum.

Eiginleikar

  • Allt að sex virknieiningar í einu húsi (ICF 20-6 og ICF 25-6)
  • Kemur fullsamsett og lekaprófuð við háan þrýsting
  • Hámarksvinnuþrýstingur 52 bar, hitasvið −60/+120 °C
  • Hliðartengi 3/8" G fyrir mæla, nema eða hæðargler
  • Hentar fyrir ammoníak (R717), CO2 (R744), HFC og HCFC

Lýsing

Að lesa samsetninguna

Bókstafirnir lýsa einingunum í réttri röð frá inntaki: S er lokunarloki (ICFS), F sía (ICFF), MV segulloki (ICFE), MVH segulloki ICFE 20H með innbyggðri handopnun, MO handopnari (ICFO), RA/RB handstilliloki (ICFR A/B) og B blint lok. Í öllum ICF 15 stöðvum eru fyrstu tvær einingarnar fastar sem lokunarloki og sía.

Hvað fylgir ekki

Spólur fyrir segullokana fylgja ekki og eru pantaðar sér. Pöntunarkóðarnir hér miðast við suðutengingu samkvæmt DIN (EN 10220); ANSI og múffusuðuútgáfur hafa aðra kóða.

Notkun og svið

ICF lokastöðvar eru algengar í vökvafæðingu að eimum og í innspýtingarlögnum í ammoníakkerfum frystihúsa, fiskvinnslna, sláturhúsa og kæligeymslna. Þær spara bæði uppsetningartíma og pláss þar sem margir lokar sætu annars í röð.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
ICF 15-4 DN 15, S+F+MV+MO (lokunarloki, sía, segulloki, handopnari)
ICF 15-4 DN 15, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4543
ICF 15-4 DN 15, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4543
ICF 15-4 DN 20, S+F+MVH+S (lokunarloki, sía, segulloki ICFE 20H með handopnun, lokunarloki)027L4521
ICF 20-4 DN 20, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L3120
ICF 20-4 DN 25, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L3067
ICF 25-4 DN 25, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4063
ICF 25-4 DN 25, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4063
ICF 25-4 DN 32, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4067
ICF 25-4 DN 40, S+F+MV+S (lokunarloki, sía, segulloki, lokunarloki)027L4072
ICF 15-4 DN 15, S+F+MV+RB (lokunarloki, sía, segulloki, handstilliloki B)027L4544
ICF 20-6 DN 20, S+F+MV+MO+RA+S (lokunarloki, sía, segulloki, handopnari, handstilliloki A, lokunarloki)027L3000
ICF 20-6 DN 25, S+F+MV+MO+RA+S (lokunarloki, sía, segulloki, handopnari, handstilliloki A, lokunarloki)027L3002
ICF 20-6 DN 25, S+F+MVH+B+RB+S (lokunarloki, sía, segulloki ICFE 20H með handopnun, blint lok, handstilliloki B, lokunarloki)027L3406
ICF 20-6 DN 32, S+F+MV+MO+RA+S (lokunarloki, sía, segulloki, handopnari, handstilliloki A, lokunarloki)027L3003
ICF 20-6 DN 32, S+F+MVH+B+RB+S (lokunarloki, sía, segulloki ICFE 20H með handopnun, blint lok, handstilliloki B, lokunarloki)027L3407
ICF 25-6 DN 32, S+F+MV+RA+S (lokunarloki, sía, segulloki, handstilliloki A, lokunarloki)
ICF 25-6 DN 40, S+F+MV+MO+RB+S (lokunarloki, sía, segulloki, handopnari, handstilliloki B, lokunarloki)

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
VörulínaICF Flexline lokastöðvar
HúsICF 15-4, ICF 20-4, ICF 20-6, ICF 25-4, ICF 25-6
KælimiðlarAmmoníak (R717), CO2 (R744), HFC og HCFC; ekki mælt með eldfimum kolvetnum
Hámarksvinnuþrýstingur52 bar
Hitasvið miðils−60/+120 °C
EfniLághitastál í húsi og einingum
Síuinnsetningar150 µm; síuflötur frá 60 cm² (ICFF 15) upp í 330 cm² (ICFF 25E)
TengingarSuða DIN (EN 10220) eða ANSI, múffusuða ANSI, lóðning, innra snitti
Hliðartengi3/8" G (DIN/ANSI) eða 3/8" NPT (múffusuða)
YfirborðsvörnZink-TLP (EN ISO 2081); mælt með viðbótar tæringarvörn á staðnum
VottunUL
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top