Danfoss SNV þjónustulokar, QDV 15 olíuaftöppunarloki og fylgihlutir

Sérpöntun. SNV-ST og SNV-SS lokar fyrir mæla og þjónustubúnað, QDV 15 hraðlokandi olíuaftöppunarloki fyrir ammoníak og tilheyrandi nipplar, hettur og pakkningar.

SKU: NH3-SP-125 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Við pöntum þessa vöru sérstaklega fyrir hverja pöntun. Hún er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.

Danfoss SNV þjónustulokar, QDV 15 olíuaftöppunarloki og fylgihlutir

Lítill þjónustuloki á réttum stað sparar mikinn tíma við mælingar, áfyllingu og olíuaftöppun. Danfoss SNV-ST og SNV-SS eru lokunarlokar fyrir þrýstimæla og þjónustubúnað, og QDV 15 er hraðlokandi loki til að tappa olíu af ammoníakkerfum. QDV 15 lokast sjálfkrafa um leið og handfanginu er sleppt, sem eykur öryggi við olíuaftöppun.

Eiginleikar

  • SNV-ST: stálhús, 52 eða 65 bar útgáfur, −60 til +150 °C
  • SNV-SS: ryðfrítt stál
  • Bakþétting málm í málm, hægt að skipta um spindilþéttingu undir þrýstingi
  • QDV 15: lokast sjálfkrafa þegar handfanginu er sleppt
  • Fjöldi tenginga: skurðhringur 10 mm, NPT, G ½ A, suða ½”

Lýsing

QDV 15 fyrir olíuaftöppun

QDV 15 er gerður fyrir ammoníak (R717) og hitasvið −50 til +150 °C. Hann er með ½” NPT innri tengingum og fæst með slöngu- og suðunippli. Þrýstigildi eru staðfest við pöntun, þar sem eldri og nýrri gögn Danfoss stemma ekki.

Fylgihlutir

Í línunni eru einnig hettur, blindhettur, álpakkningar, suðunipplar og 10 mm skurðhringstengi. Suðunippill DN 6 fyrir SVA/SNV hefur pöntunarnúmerið 148B4184; önnur númer staðfestum við eftir tengingu.

Notkun og svið

SNV lokar eru notaðir til að tengja þrýstimæla, þrýstinema og þjónustubúnað við ammoníakkerfi, og QDV 15 til að tappa olíu af hylkjum og olíupottum á öruggan hátt. Þetta eru hlutir sem nýtast í hverjum vélasal, hvort sem er í frystihúsi, fiskvinnslu, mjólkurbúi eða skautahöll.

Stærðir og gerðir

GerðVörunúmer framleiðanda
Mælatenging ERMETO 10 mm
SNV-ST CD 10 – CD 10
SNV 1/4” FPT – 1/4” MPT
SNV CD 6 – 1/4” MPT
SNV 3/8” FPT – 3/8” MPT
SNV CD 10 – 1/4” MPT
SNV CD 10 – 3/8” MPT
SNV CD 6 – 3/8” MPT
SNV G 1/2”, með millistykki fyrir ICF
SVA 6 T, 1/2”
SNV CD 10 W 1/2” L100
SNV G 1/2” W 1/2” L100
SNV SS G 1/2” W 1/2” L150, ryðfrítt stál
Hetta fyrir SVA 6
Álpakkning fyrir ICF þjónustuloka
Álpakkning fyrir SVA 6
Blindhetta 1/2”
Hetta fyrir SNV / ICFE 20
SNV-ST 1/2-1/2 G
Suðunippill DN 6 fyrir SVA 6 T148B4184
Suðunippill CD 10 fyrir SNV
QDV 15, sjálflokandi
QDV 15, innri 1/2” FPT
QDV 15 og SVA 15, sett
QDV 15 slöngunippill
QDV 15 suðunippill
Viðgerðarsett fyrir eldri QDV 15
10 mm skurðhringur, tvöfalt millistykki
10 mm ró fyrir skurðhring
10 mm tappi

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
SNV-ST hámarksvinnuþrýstingur52 eða 65 bar eftir útgáfu
SNV-ST hitasvið−60/+150 °C
SNV efniSNV-ST: stál; SNV-SS: ryðfrítt stál
SNV tengingarSkurðhringur 10 mm, NPT ¼–½, G ½ A, suða ½”, eftir gerð
SNV kælimiðlarAmmoníak (R717), CO2 (R744), HCFC og óeldfimir HFC
QDV 15 kælimiðillAmmoníak (R717)
QDV 15 hitasvið−50/+150 °C
QDV 15 tengingar½ NPT innri, inntak og úttak; slöngu- og suðunipplar fáanlegir
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top