Sérpöntun: Þessi vara er ekki til á lager. Hún er sérpöntuð fyrir þig og afhendingartími kemur fram í verðtilboði. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000.
Danfoss REG stillilokar – upptektarsett
Nákvæm handstilling á vökva- eða þenslulögn er aðeins jafn góð og ástand lokans. Upptektarsett frá Danfoss heldur REG stillilokanum þéttum og nákvæmum, hvort sem um er að ræða nýrri REG-SA/SB loka eða eldri REG loka sem enn eru víða í rekstri. Fyrir eldri lokana er settið valið eftir keilunúmeri.
Eiginleikar
- Fyrir nýja REG-SA og REG-SB loka, DN 10 til DN 65
- Fyrir eldri REG loka með keilu 1 til 8
- Upprunalegir Danfoss varahlutir
- Heldur stillingu lokans nákvæmri
Lýsing
Eldri REG lokar
Sett fyrir eldri REG loka eru valin eftir stærð og keilunúmeri, sem stendur á lokanum. Þau falla utan núverandi varahlutablaðs Danfoss, svo við staðfestum rétt sett áður en pantað er.
Nýrri REG-SA/SB
Fyrir REG-SA/SB eru til sett í DN 10, 15-20, 25-40, 50 og 65. Í Flexline kerfum getur heill REG efri hluti líka verið valkostur.
Notkun og svið
Upptektarsett fyrir REG eru notuð við viðhald á handstýrðum stillilokum í vökva- og þenslulögnum ammoníakkerfa, til dæmis í frystihúsum, kæligeymslum og fiskvinnslum.
Stærðir og gerðir
| Gerð | Vörunúmer framleiðanda |
|---|---|
| Upptektarsett nýja REG SA-SB 10 | 148B6174 |
| Upptektarsett nýja REG SA-SB 10-20 | |
| Upptektarsett nýja REG SA-SB 25-40 | 148B6176 |
| Upptektarsett nýja REG SA-SB 50 | 148B6177 |
| Upptektarsett nýja REG SA-SB 65 | 148B6178 |
| Upptektarsett eldri REG 3-10, keila 1 | |
| Upptektarsett eldri REG 3-10, keila 2 | |
| Upptektarsett eldri REG 3-10, keila 3 | |
| Upptektarsett eldri REG 15-25, keila 4 | |
| Upptektarsett eldri REG 15-25, keila 5 | |
| Upptektarsett eldri REG 15-25, keila 6 | |
| Upptektarsett eldri REG 15-25, keila 7 | |
| Upptektarsett eldri REG 25-40, keila 8 |
Tæknigögn
| Framleiðandi | Danfoss |
|---|---|
| Fyrir loka | REG-SA/SB (nýrri gerð) og eldri REG loka |
| Stærðir | REG-SA/SB DN 10 – DN 65; eldri REG 3-10 til 25-40 |
| Hámarksvinnuþrýstingur REG-SA/SB | 52 bar |
| Hitasvið REG-SA/SB | −60/+150 °C |
| Kælimiðlar | Ammoníak (R717), CO2 (R744), HFC, HCFC o.fl. |
| Afhending | Sérpöntun, ekki lagervara |

