Danfoss SVA-S lokunarloki – bein útgáfa, DN 50–200

Sérpöntun. Heill Danfoss SVA-S lokunarloki í beinni útgáfu með DIN-suðutengingu, DN 50 til DN 200. Traustur handloki fyrir stórar lagnir.

SKU: NH3-SP-106 Category: Tag: Brand:

Sérpöntun: Varan er sérpöntuð og ekki geymd á lager hjá KGG. Hafðu samband í síma 55-20000 eða sendu fyrirspurn og við gefum þér verð og afhendingartíma.

Danfoss SVA-S lokunarloki – bein útgáfa, DN 50–200

Þar sem lögnin liggur bein er SVA-S í beinni útgáfu rétta lausnin. Lokinn er byggður á SVL Flexline lokahúsi og SVA-S virknieiningu, svo síðar er hægt að gera við hann eða breyta virkninni án þess að skera hann úr lögninni. Hann er hannaður fyrir gott flæði og auðvelda upptekt.

Eiginleikar

  • Bein útgáfa með DIN-suðutengingu (EN 10220)
  • Kv-gildi 65 m³/klst í DN 50 upp í 1.024 m³/klst í DN 200
  • Hámarksvinnuþrýstingur 52 bar, 65 bar útgáfur til
  • Hitasvið −60 til +150 °C
  • Spindill og boltar úr ryðfríu stáli

Lýsing

Opnunarþrýstimunur

Upp að DN 80 jafngildir leyfilegur þrýstimunur við opnun og lokun hámarksvinnuþrýstingi. Í DN 100 er hann 44 bar, DN 125 33 bar, DN 150 21 bar og DN 200 14 bar.

Útfærsla

Lokinn fæst með hettu eða handhjóli í hverri stærð og pöntunarnúmer Danfoss fer eftir því. Láttu okkur vita hvort hentar og við staðfestum rétta útgáfu.

Notkun og svið

Beinn SVA-S hentar í langar, beinar aðal- og safnlagnir í ammoníakkerfum (R717), til dæmis í vélasölum frystihúsa, mjólkurbúa og skautahalla, þar sem loka þarf af stórum kerfishlutum við þjónustu.

Stærðir og gerðir

Gerð
Lokunarloki SVA-S 50 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 65 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 80 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 100 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 125 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 150 D, bein útgáfa
Lokunarloki SVA-S 200 D, bein útgáfa

Tæknigögn

FramleiðandiDanfoss
GerðSVA-S lokunarloki, SVL Flexline
ÚtgáfaBein útgáfa
Tenging (D)Suða DIN (EN 10220)
Hámarksvinnuþrýstingur52 bar (65 bar útgáfur fáanlegar)
Hitasvið−60/+150 °C
KælimiðlarAmmoníak (R717), CO2 (R744), HFC, HCFC og eldfimir kælimiðlar
Kv-gildiDN 50: 65 · DN 65: 97 · DN 80: 152 · DN 100: 278 · DN 125: 470 · DN 150: 597 · DN 200: 1.024 m³/klst
EfniKuldaþolið stál P285QH+QT (EN 10222-4) / LF2 (ASTM A350)
BakþéttingMálmur upp í DN 65, PTFE frá DN 80
FlæðiBáðar áttir (Kv lækkar lítillega í öfuga átt)
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top