Technoblock SE — bi-block, veggfest þéttieining, 3–112 m³

Veggfest bi-block með forfylltum hraðtengjum. 400–6.700 W fyrir klefa 3–112 m³, kæling +5/−5 °C eða frysting −18/−25 °C.

SKU: TB-SE Category:

Bi-block (splitt) þýðir að kerfinu er skipt í tvennt:
þéttieining með þjöppu utan klefans og eimari í lofti
klefans. Á milli fara forfylltar leiðslur með hraðtengjum, þannig að ekki þarf að lóða á
staðnum. Hávaðinn og varminn frá þjöppunni verða eftir utan við kældu rýmið.

SE nær hærra en S-línan — upp í 112 m³ klefa — og kemur með forfylltum leiðslum og hraðtengjum sem stytta uppsetningu verulega. Tengipunktur fyrir klefaljós fylgir.

Tæknilegar upplýsingar

GerðTechnoblock SE — bi-block (splitt)
UppsetningÞéttieining á vegg utan klefans, eimari í lofti inni
Kæling (TN)+5 / −5 °C
Frysting (TB)−18 / −25 °C
Kæliafköst400–6.700 W
Klefastærð3–112 m³
KælimiðlarR-452A · R-448A · R-449A
Tengileiðslur5 m staðalbúnaður, 10 m sé þess óskað — forfylltar með hraðtengjum
ÞenslaHáræð (capillary)
SíaSameindasía á vökvalínu

Staðalbúnaður

  • Rafeindastýring með fjarstýriborði — 5 m kapall, allt að 20 m sé þess óskað.
  • Þrýstiliðar samkvæmt þrýstibúnaðartilskipun ESB 2014/68/EU.
  • Sía á vökvalínu og vökvasafnari með öryggisloka (eftir gerð).
  • Affrysting og frárennsli þéttivatns með hitaþræði.
  • Hurðarhitaþráður á frystiútfærslum.

Allar gerðir og afköst

Hér eru allar gerðir SE-línunnar úr vörulistum Technoblock 2026. Gerðarheitið segir til um kælimiðil og hitastig, og við finnum réttu gerðina fyrir klefann þinn.

Hár hiti +15/+5 °C — afl við 10 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
SETH0501.370 W14,2 m³230/1/500,84 kW
SETH0751.810 W21,7 m³230/1/501,53 kW
SETH1002.380 W33,2 m³230/1/501,73 kW
SETH1202.610 W41,9 m³400/3/501,92 kW
SETH1222.610 W41,9 m³230/1/501,85 kW
SETH1504.550 W68,2 m³400/3/502,45 kW

Kæling +5/-5 °C — afl við 0 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
SETW050850 W7,7 m³230/1/500,74 kW
SETW0601.000 W9,8 m³230/1/500,96 kW
SETW0751.240 W12,1 m³230/1/501,19 kW
SETW1001.510 W17,0 m³230/1/501,54 kW
SETW1201.865 W21,2 m³400/3/501,69 kW
SETW1221.865 W21,2 m³230/1/501,65 kW
SETW1502.708 W40,3 m³400/3/502,19 kW
SETW2003.163 W46,5 m³400/3/502,5 kW

Frysting -18/-25 °C — afl við -22 °C · R-449A

GerðKæliaflKlefi allt aðRafmagnHámarksálag
SETF170720 W5,7 m³230/1/501,38 kW
SETF201915 W8,3 m³230/1/501,53 kW
SETF2021.075 W10,0 m³400/3/502,09 kW
SETF2031.575 W15,7 m³400/3/502,70 kW
SETF3001.833 W17,9 m³400/3/502,60 kW
SETF4002.141 W28,0 m³400/3/503,77 kW

Kæliafl miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn. Klefarúmmál miðast við einangrunarþykkt samkvæmt gagnablöðum Technoblock (venjulega 70 mm fyrir kælingu og 100 mm fyrir frystingu). Tölurnar eru úr vörulistum Technoblock 2026.

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá Technoblock á Ítalíu. Hafðu samband og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð — sjá einnig
splitt-kerfin STX og STZ.

Hafðu samband

Sendu okkur stærð klefans, hitastigið sem þú þarft og hvar einingin á að sitja — við
förum yfir valið, staðfestum gerð og gerum tilboð:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig yfirlit
yfir öll Technoblock kerfin
og
fullbúin kælikerfi.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top