Technoblock S — bi-block, veggfest þéttieining, 2,8–77 m³

Bi-block með veggfestri þéttieiningu og eimara í lofti klefans. Kæling 500–5.184 W (3,1–76,8 m³) eða frysting 425–3.209 W (2,8–56,3 m³).

SKU: TB-S Category:

Bi-block (splitt) þýðir að kerfinu er skipt í tvennt:
þéttieining með þjöppu utan klefans og eimari í lofti
klefans. Á milli fara forfylltar leiðslur með hraðtengjum, þannig að ekki þarf að lóða á
staðnum. Hávaðinn og varminn frá þjöppunni verða eftir utan við kældu rýmið.

S-línan er algengasta veggfesta útfærslan — þéttieiningin hangir á vegg rétt utan við klefann og tekur ekkert gólfpláss.

Tæknilegar upplýsingar

GerðTechnoblock S — bi-block (splitt)
UppsetningÞéttieining á vegg utan klefans, eimari í lofti inni
Kæling (TN)+5 / −5 °C — 500–5.184 W, 3,1–76,8 m³
Frysting (TB)−18 / −25 °C — 425–3.209 W, 2,8–56,3 m³
Kæliafköst425–5.184 W
Klefastærð2,8–76,8 m³
KælimiðlarR-452A · R-448A · R-449A

Staðalbúnaður

  • Rafeindastýring með fjarstýriborði — 5 m kapall, allt að 20 m sé þess óskað.
  • Þrýstiliðar samkvæmt þrýstibúnaðartilskipun ESB 2014/68/EU.
  • Sía á vökvalínu og vökvasafnari með öryggisloka (eftir gerð).
  • Affrysting og frárennsli þéttivatns með hitaþræði.
  • Hurðarhitaþráður á frystiútfærslum.

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá Technoblock á Ítalíu. Hafðu samband og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð — sjá einnig
splitt-kerfin STX og STZ.

Hafðu samband

Sendu okkur stærð klefans, hitastigið sem þú þarft og hvar einingin á að sitja — við
förum yfir valið, staðfestum gerð og gerum tilboð:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig yfirlit
yfir öll Technoblock kerfin
og
fullbúin kælikerfi.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top