Technoblock CMMR-S — fjölpressukerfi með hálflokuðum þjöppum

Tvær til fjórar hálflokaðar þjöppur á sameiginlegri grind. Nær niður í −30 °C og þjöppurnar eru viðgerðarhæfar.

SKU: TB-CMMR-S Category:

CMMR-S er fjölpressukerfi með hálflokuðum þjöppum — þeim sem hægt er að opna og gera við.

Það er stóri munurinn frá CMMR-H. Hálflokuð þjappa er dýrari í innkaupum en hana má taka í sundur: skipta um ventlaplötu, legur, stimpla eða pakkningar í stað þess að henda þjöppunni. Í kerfi sem gengur allan sólarhringinn allt árið borgar sá munur sig fljótt.

Kerfið nær líka lengra niður — allt í −30 °C.

Tæknilegar upplýsingar

Þjöppur2, 3 eða 4 hálflokaðar, allar jafnstórar
HitastigHátt +5/0 °C · Miðlungs −5/−10 °C · Lágt −25/−30 °C
KælimiðlarR-452A (aðal) · R-449A · R-448A
LagnirFulleinangruð soggrein með sér lögn frá hverri þjöppu; olíugrein með krana á hverri lögn
LokarSog- og þrýstikranar og styrktur bakrennslisloki á hverri þjöppu
GrindGalvaníseruð og lökkuð, stillanlegir dempufætur og hallamál
AfhendingÞrýstiprófað, rafmagnsprófað, forfyllt með pólýólesterolíu, sent undir helíumþrýstingi

Fyrir hverja?

CMMR-S er byggt fyrir matvælavinnslu og aðra staði þar sem kerfið stoppar aldrei. Ef þú ert að þjóna verslunarkælum eða veitingaeldhúsi er CMMR-H hagkvæmara.

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top